Hoppa í efni

Ungir framsóknarmenn á góðri leið

Sigurður Hólm Gunnarsson | 15.10.2003

Pólitísk átök snúast í dag yfirleitt um baráttu íhaldsmanna og frjálslyndra. Framsóknarflokkurinn hefur lengi verið talinn eitt helsta vígi íhaldsmanna hér á landi en nú er von til þess að flokkurinn muni smá saman færast í frjálsræðisátt. Ný grein á vefriti ungra framsóknarmanna, www.maddaman.is vekur þessa von.

Framsóknarmenn hafa yfirleitt verið hörðustu andstæðingar þess að ríki og kirkja verði aðskilin. Fyrir nokkrum dögum benti undirritaður á ræðu Guðna Ágústssonar um stefnuræðu forsætisráðherra þessu til stuðnings. Þar tók Guðni það skýrt fram að Framsóknarflokkurinn vildi alls ekki aðskilja ríki og kirkju.

Í ágætri grein eftir Jón Einarsson, stjórnarmann í Félagi ungra framsóknarmanna á Skagafirði og varamanni í stjórn SUF, kemur fram að unga fólið í flokknum er ekki sammála varaformanni sínum.

Jón, sem styður aðskilnað ríkis og kirkju, segir meðal annars:

Eins væri ekki úr vegi að kirkjunnar menn, með herra biskupinn í broddi fylkingar, tækju nú á sig rögg og hættu að leggja stein í götu þeirra sem vilja vinna að aðskilnaði ríkis og kirkju. Þá fyrst þegar fólk getur notið raunverulegs trúfrelsis verður hægt að tala um að myrkrið sé að hopa.

Afstaða unga fólksins í Framsókn ætti að vera öllum þeim sem berjast fyrir trúfrelsi á Íslandi mikil gleðitíðindi.

Sjá grein Jóns:
Hvar skyldi nú mest myrkrið vera?

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Efnahagur og atvinnulíf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.