Hoppa í efni

Allsherjar stríð gegn hverjum?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 17.09.2001

Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun styðja 75% Bandaríkjamanna allsherjastríð gegn hverju því ríki sem styður eða hylmir yfir hryðjuverkamönnum. Það lýtur því út fyrir að saklaust fólk í Afganistan fái að gjalda fyrir hrottaskap örfárra manna sem eru þar við völd.

Ef Osama Bin Laden ber ábyrgð á hryðjuverkunum í BNA þarf vitaskuld handtaka hann og láta hann svara til saka. Ef yfirvöld í Afganistan hafa beint eða óbeint stutt þessa árás er eðlilegt að þeim verði einnig refsað. En það skiptir máli hvernig það verður gert?

Almenningur í Afganistan samanstendur mestmegnis af saklausu fólki sem hefur þurft að þola nóg um dagana. Stríðið við Sovétríkin lagði landið nánast í rúst og nú undir stjórn hinna ofsatrúuðu Talíbana hefur almenningur þurft að þola mikið harðræði. Fólk er myrt fyrir minnstu ,,afbrot" og frést hefur að Talíbanar dundi sér við að grafa ógiftar konur og ekkjur lifandi. Maður getur varla ímyndað sér hvernig er að búa við slíkar aðstæður.

Það er því skilda þeirra sem vilja ráðast inn í Afganistan í þeim tilgangi að handsama Bin Laden að gera það með þeim hætti að sem fæstir, og helst enginn, saklausir borgarar láti lífið.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (841) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.