Maður hefði haldið að árið 2026 væri auðvelt að panta tíma hjá lækni á heilsugæslunni í gegnum netið. Svo er ekki.
Ég skrái mig inn á Heilsuveru og smelli á „Bóka tíma“. Hjá minni heilsugæslustöð er ekkert annað í boði en getnaðarvarnarráðgjöf, skimun fyrir leghálskrabbameini og bólusetning. Af hverju get ég ekki pantað tíma vegna annarra kvilla? Ég er að farast í bakinu og er ekki viss um að getnaðarvarnarráðgjöf hjálpi mér þar.
Ég ákveð því að senda skilaboð í gegnum Heilsuveru. En það er ekki hægt heldur. Ekki núna á sunnudegi. Heilsugæslan „tekur ekki á móti nýjum skilaboðum“ og næst verður hægt að senda þau á morgun, 30. nóvember, klukkan sex.
Af hverju í ósköpunum? Hvaða máli skiptir fyrir móttakandann hvenær ég sendi rafræn skilaboð? Ég veit auðvitað að enginn skoðar þau fyrr en á mánudag. En það væri nú ágætt að geta sent erindið núna, þegar ég hef lausan tíma.
Í staðinn þarf ég að hringja á morgun og bíða í símanum, örugglega númer 47 í röðinni, til að panta tíma.
Ætli ég noti ekki tímann á meðan ég bíð til að senda heilsugæslunni skilaboð…



