Hoppa í efni

Fasistar hóta að kveikja í moskum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 25.11.2026

Í Facebook-hópnum „Ísland, þvert á flokka“, sem telur yfir 13 þúsund meðlimi, má sjá hótanir og eldtákn í umræðu um múslima og moskur á Íslandi. Þetta er óhugnanlegt dæmi um öfgahægrið hér á landi og þá ógn sem fylgir því þegar heill trúarhópur er gerður að skotmarki.

Sigfús Aðalsteinsson, sem er merktur stjórnandi hópsins, birti þar færslu þar sem hann ræðst að vinstrinu, „woke“, trans fólki og femínistum. Sérstaklega beinir hann spjótum sínum að íslam og talar um „hjörðina“ sem stækki. Færslunni lýkur á orðunum „Þetta verður að stoppa, núna!“

Í athugasemdunum ganga aðrir lengra. Þar er talað um timburhús, birt eldtákn og rætt um að engar moskur verði eftir á Íslandi. Ég bendi hér með lögreglu á þessi ummæli.

Einn skrifar „þetta er timburhús“. Annar svarar honum „jebb“ og bætir við eldtákni. Þriðji svarar sömuleiðis með eldtákni.

Í sömu svarakeðju skrifar einn þátttakandi „eg hef lengi sagt að ef skemmdir yrðu unnar á íslenskri kirkju þá verða engar moskur eftir á íslandi.“

Annar þátttakandi skrifar „Eigum við ekki að breyta þessu til betra. Fyrir 2027.Og gera góðar áramótabrennur. Það er það eina sem það skilur ef það skilur eitthvað“ og bætir við reiðitákni.

Í enn annarri athugasemd stendur „Burt mð þetta skíta pakk úr mínu landi“ og með fylgir mynd af reiðri eldveru.

Þetta þarf að lesa í samhengi. Þegar rætt er um moskur, bent á að hús sé úr timbri, svarað með eldtáknum og síðan talað um brennur og að engar moskur verði eftir, les ég það sem ógnun um íkveikjur.

Annars staðar í þræðinum er fólk kallað „skríll“ og „drasl“ og krafist að það verði rekið úr landi. Þannig er talað um nágranna okkar, vinnufélaga og börn vegna trúar þeirra.

Þetta er ekkert annað en stórhættulegur fasismi. Heill hópur er gerður að ógn, fólk er smánað og því hótað ofbeldi. Þeir sem tala hæst um að verja samfélagið ættu að líta á það sem birtist í eigin umræðu.

Lögregla þarf að taka þessi ummæli alvarlega, rannsaka þau og meta hvort tilefni sé til ákæru. Fólk sem sækir moskur á Íslandi á að geta treyst því að brugðist sé við slíkum ógnunum. Ef þetta fær að viðgangast án viðbragða er eitthvað mikið að.

Ég hef varðveitt skjáskot og textaafrit af færslunni og ummælunum sem hér er vísað til og get afhent lögreglu þau.

Skjáskot af ummælum um timburhús, eldtáknum og hótun um moskur. Nöfn og prófílmyndir afmáð.
Skjáskot 1. Nöfn og prófílmyndir athugasemdahöfunda hafa verið afmáð.
Skjáskot af niðrandi ummælum og eldmynd. Nafn og prófílmynd afmáð.
Skjáskot 2. Nöfn og prófílmyndir athugasemdahöfunda hafa verið afmáð.
Skjáskot af ummælum um áramótabrennur. Nafn og prófílmynd afmáð.
Skjáskot 3. Nöfn og prófílmyndir athugasemdahöfunda hafa verið afmáð.

Heimildir

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (862) →

Fleiri greinar sem tengjast: Mannréttindi og jafnrétti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.