Hoppa í efni

Nútíminn, múslimar, trúaröfgamenn og ég

Sigurður Hólm Gunnarsson | 12.11.2026

Mér hefur verið bent á að hið vandaða vefrit Nútíminn, sem stundum fjallar víst um annað en útlendingaótta og múslimafóbíu, hafi birt grein mér til höfuðs. Tilefnið er færsla Lilju Benatov Hjartar á X. Henni finnst ég nota „500 ára gamla sagnfræði“ til að afgreiða raunverulegar áhyggjur af trúarofstæki í samtímanum. Þar vísar hún í pistil minn „Stefán Einar, vondu múslimarnir og hin vestrænu gildi“. Henni finnst líka að það að eigna skálduðum múslimum orð Marteins Lúters fari illa saman við það sem ég hef sagt um uppbyggileg samskipti.

Ég lagði vissulega gildru. Ég vildi fá lesandann til að velta því fyrir sér hvort hann brygðist öðruvísi við sömu orðum eftir því hver átti að hafa sagt þau. Háðspistlar eru vandasamir og Lilja á alveg rétt á því að spyrja hvort háðið hafi skyggt á það sem ég var að reyna að segja.

Hvað átti Lúter að sanna?

Ég var ekki að leggja að jöfnu rit Lúters frá 1543 og prédikun sem flutt er á okkar dögum. Auðvitað skiptir máli hvort einhver boðar slíkt í dag. En aldur trúartexta segir okkur ekki einn og sér hvaða áhrif hann hefur. Hadíðan sem Lilja nefnir er miklu eldri en rit Lúters. Hún á erindi í umræðuna vegna þess að prédikari kaus að vitna í hana á okkar dögum. Það er sá maður sem þarf að svara fyrir prédikunina.

Enginn lúterstrúarmaður þarf að sanna fyrir mér að hann sé á móti því að brenna samkunduhús og drepa gyðinga. Hvers vegna ætti múslimi úti í bæ að þurfa að sanna það fyrir mér eða öðrum?

Lilja nefnir dóminn yfir Mundhir Abdallah í Kaupmannahöfn og brottvísun Mahjoub Mahjoubi frá Frakklandi. Þetta eru raunveruleg mál. Ég gagnrýndi sjálfur boðskap Muhammad Taqi Usmani þegar hann fékk að tala í Stórmoskunni í Reykjavík. Dauðarefsing fyrir að yfirgefa trú er viðbjóður. Það sama á við um hvatningu til ofbeldis gegn gyðingum. Þegar rætt er um uppgjör innan íslams er líka ástæða til að nefna að múslimskir trúarleiðtogar og fræðimenn svöruðu leiðtoga Íslamska ríkisins opinberlega og höfnuðu því að samtökin gætu réttlætt ofbeldi sitt með vísun í íslam. Þær raddir eru líka hluti af samtímanum.

En allt í lagi. Skoðum samtímann.

Þann 25. mars á þessu ári las Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, bæn við kristna guðsþjónustu í Pentagon og bað um „yfirþyrmandi ofbeldi gegn þeim sem eiga enga miskunn skilið“. Tæpum mánuði fyrr, á fyrsta degi stríðsins gegn Íran, hafði barnaskóli í Minab orðið fyrir árás. Rannsókn Amnesty International komst að þeirri niðurstöðu að bandaríski herinn hefði gert árásina. Samkvæmt Amnesty létust 156 manns, þar af 120 börn. Meðal hinna látnu voru kennarar og foreldrar sem komu að sækja börnin sín. Að minnsta kosti 95 særðust, samkvæmt Airwars. Halelúja.

Söfnuðurinn sem Hegseth sækir tilheyrir ofuríhaldssömu kirkjuneti sem nefnist Communion of Reformed Evangelical Churches. Bandaríski prédikarinn John Hagee fjallaði á sama tíma um átökin við Íran í ljósi biblíuspádóma. Á vef hans stendur: „Þetta er engin tilviljun. Þetta er spádómur.“

Þegar Benjamin Netanyahu kynnti næsta áfanga hernaðarins á Gaza í október 2023 sagði hann: „Þið verðið að muna hvað Amalek gerði ykkur, segir í heilagri Biblíu okkar. Og við munum það.“ Suður-Afríka vísaði til ummælanna í máli sínu gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum. Sjálfstæð rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna komst að þeirri niðurstöðu árið 2025 að ísraelsk yfirvöld og herlið hefðu framið þjóðarmorð á Gaza. Tilvitnunin ein og sér skýrir auðvitað hvorki stríðið né ákvarðanir ísraelskra stjórnvalda. En við eigum að taka eftir því þegar valdamenn sækja orðfæri sitt í helgirit til að réttlæta hernað og morð.

Þegar Biblían verður að landabréfi

Mike Huckabee, sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael, er kristinn síonisti. Enn einn bókstafstrúaður rugludallur með völd. Í viðtali við Tucker Carlson í febrúar á þessu ári lýsti hann Ísrael sem landi sem Guð hefði gefið þjóðinni sem hann valdi. Þegar Carlson spurði hvort Ísrael ætti þá tilkall til alls landsvæðisins sem þeir ræddu út frá Fyrstu Mósebók svaraði Huckabee: „Það væri í lagi þótt þeir tækju það allt.“ Í viðtali við PBS um Gaza árið áður hafði hann velt því upp hvort palestínskt ríki gæti verið annars staðar en á Vesturbakkanum. Það er dálítið sláandi að í málflutningi sendiherrans skuli land Ísraelsmanna vera gjöf frá Guði á meðan staðsetning ríkis Palestínumanna er opin spurning.

Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og leiðtogi flokks trúarlegra síonista, hefur talað skýrt um hvað hann vill á Gaza. Á ráðstefnu um endurreisn landnemabyggða þar í janúar 2024 sagði hann: „Með Guðs hjálp munum við setjast þar að og sigra.“ Á trúarhátíð í Sderot í október 2025 ítrekaði hann: „Það verða byggðir gyðinga á Gaza. Því án landnemabyggða er ekkert öryggi.“ Smotrich færir öryggisrök fyrir landnemabyggðunum og talar í sömu andrá um sigra með Guðs hjálp. Trúin er hluti af því hvernig hann réttlætir afstöðu sína til þess hverjir eigi að ráða yfir Gaza.

Og hvað með konur og hinsegin fólk?

Dæmin eru óteljandi um valdamenn og kristna trúarleiðtoga sem réttlæta andúð á hinsegin fólki, þar á meðal transfólki, með vísan til eigin trúar. Þetta er sérstaklega áberandi í Bandaríkjunum en við þekkjum það líka hér á litla Íslandi. Doug Wilson, einn stofnenda kirkjunetsins sem söfnuður Hegseths tilheyrir, boðar að eiginmaðurinn eigi að vera höfuð heimilisins og eiginkonan lúta forystu hans. Wilson hefur líka talað gegn stjórnarskrárbreytingunni sem tryggði konum kosningarétt til jafns við karla í Bandaríkjunum og lýst henni sem hræðilegri hugmynd. Þetta eru skoðanir sem Wilson hefur sjálfur sett fram opinberlega.

Lilja segir réttilega í pistli sínum að lög landsins eigi að standa ofar trúarreglum og að verja beri réttindi kvenna og minnihlutahópa. Þar er ég henni hundrað prósent sammála. Við eigum að geta gagnrýnt imam sem boðar hatur, kristinn prédikara sem vill skerða réttindi og ráðherra sem réttlætir ofbeldisverk í nafni Guðs. Heill trúarhópur á ekki að þurfa að svara fyrir neinn þessara ofstækismanna. Þetta virðast flestir skilja þegar kemur að kristnu fólki. En þegar múslimar berast í tal eru þeir allt of oft stimplaðir sem öfgamenn og ómenni. Það eru stækir fordómar. Það er þetta sem ég er að benda á.

Trúarofstæki í nafni íslams er stórhættulegt og á skilið harða gagnrýni. Og já, ýmislegt sem Múhameð er sagður hafa boðað er ljótt og til lítillar fyrirmyndar, svo vægt sé til orða tekið. Sama má segja um ýmislegt sem Jesús Kristur á að hafa sagt. Svo er það pabbi hans, Guð, sem er auðvitað líka hann sjálfur. Það er nóg af viðbjóði í helgiritum abrahamísku trúarbragðanna. Fíllinn í herberginu er sá að öfgamenn boða hatur og mannréttindabrot í nafni kristni og gyðingdóms líka. Sumir þeirra hafa aðgang að ríkisvaldi og mun öflugri drápstólum en flestir aðrir ofstækismenn.

Í kirkjum víða um heim er boðuð harka, kynt undir hatri í garð hinsegin fólks og alið á stríðsæsingi og stórhættulegum dómsdagshugmyndum. Í Bandaríkjunum hafa sumir þeirra sem boða slíkt greiðan aðgang að valdamönnum eða eru jafnvel sjálfir við völd. Þeir geta beitt sér fyrir skerðingu réttinda heima fyrir og stutt ógeðslegt stríðsbrölt og fjöldamorð erlendis með því að klæða það í búning guðlegs vilja.

Þegar tugþúsundir hafa verið drepnar á Gaza og heilsu og framtíðarmöguleikum miklu fleiri hefur verið rústað er fráleitt að láta eins og trúarleg réttlæting hernaðarins sé eitthvert aukaatriði. Fyrir fólkið sem verður fyrir sprengjunum er ofbeldið ekkert skárra þótt ríki standi að baki því. Sagan sýnir hvað það getur kostað mörg mannslíf þegar ríki beitir herafla sínum í þágu slíks ofstækis.

Lausnin er veraldlegt samfélag

Lausnin við trúarofstæki felst ekki í því að útskúfa og fordæma alla sem aðhyllast tiltekna trú. Ég finn hana sannarlega ekki í málflutningi Nútímans, Stefáns Einars, Elliða Vignis og annarra minni spámanna. Að segja múslimum að drulla sér úr landi eða gefa í skyn að flestir þeirra séu vont fólk er ekkert annað en fasismi og fordómar. Allir sem hafa snefil af réttlætiskennd ættu að fordæma slíkan málflutning harðlega.

Lausnin er sú sama og ég hef lengi talað fyrir: að byggja upp veraldlegt samfélag þar sem fólk fær að lifa í friði, óháð trú eða trúleysi. Þar má hver og einn trúa því sem hann vill. Enginn fær að skerða mannréttindi samborgara sinna með vísan í heilög rit, trúarleiðtoga eða eigin trúarsannfæringu.

Getum við ekki öll verið sammála um þetta?

Heimildir

Sigurður Hólm Gunnarsson (2026). Stefán Einar, vondu múslimarnir og hin vestrænu gildi. Skoðun.

Sigurður Hólm Gunnarsson (2026). Stöndum saman gegn trúarofstæki. Skoðun.

Sigurður Hólm Gunnarsson (2014). Lausnin er veraldlegt samfélag. Skoðun.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (849) →

Fleiri greinar sem tengjast: Fjölmiðlar og opinber umræða

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.