Russell Brand, sem hefur undanfarin ár verið áberandi í kristilegri umræðu og meðal hægrimanna, var 5. nóvember sakfelldur fyrir nauðgun og þrjár kynferðisárásir gegn fjórum konum.
Brand gaf út bókina How to Become a Christian in 7 Days í maí á þessu ári. Í trúarlegum málflutningi sínum leggur hann meðal annars áherslu á persónulega endurfæðingu í Kristi, fyrirgefningu og frelsun frá synd. Hann hefur einnig sjálfur skírt fólk og birt myndir af athöfnunum á samfélagsmiðlum. Í september 2024 vakti til dæmis athygli þegar hann skírði mann í vatni, sjálfur klæddur nærbuxunum einum.
Hann hefur því ekki farið leynt með trú sína heldur beinlínis boðið öðrum leiðsögn að Kristi. Hægrimaðurinn og fjölmiðlamaðurinn Tucker Carlson hefur veitt honum vettvang til þess. Á viðburði í september 2024 ræddu þeir trúskipti Brands og Carlson bað hann að ljúka samkomunni með bæn.
Mér finnst því lágmark að allir sem búa á Íslandi og telja sig kristna fordæmi Brand opinberlega. Ekki bara brotin heldur líka þær trúarskoðanir sem hann hefur boðað. Þetta er jú þeirra maður. Þetta á sérstaklega við um kristna innflytjendur hér á landi. Annaðhvort afneiti þeir trúarskoðunum Brands eða flytji úr landi.
Er þetta ekki sjálfsögð krafa?
Nei, auðvitað ekki. Hann er ekki múslimi…



