Það er ekki oft sem fréttir frá Bandaríkjunum gleðja mig. En nú er ástæða til að brosa og anda léttar. Demókratar hafa unnið stórsigur í þingkosningunum og tryggt sér meirihluta í báðum deildum þingsins. Trump tapaði „bigly“.
Þegar þetta er skrifað hafa Demókratar og óháðir bandamenn þeirra tryggt sér 54 sæti í öldungadeildinni gegn 44 sætum Repúblikana. Tvö sæti eru enn óútkljáð. Í fulltrúadeildinni hafa Demókratar tryggt sér að minnsta kosti 231 sæti gegn 141 sæti Repúblikana. Talningu er ekki lokið, en meirihlutinn í báðum deildum er í höfn.
Líkleg lokaniðurstaða er þó enn stærri sigur. Samkvæmt nýjustu spá Decision Desk HQ stefnir í að Demókratar fái 258 sæti í fulltrúadeildinni gegn 177 sætum Repúblikana og að Demókratar og óháðir bandamenn þeirra verði með 55 sæti í öldungadeildinni gegn 45. Þetta er enn spá, en gangi hún eftir verður meirihlutinn rúmur í báðum deildum. Trump tapaði því ekki bara naumlega. Hann tapaði stórt.
Í hugleiðingu minni fyrir kosningarnar skrifaði ég um vonina um vinstrisveiflu og nokkra frambjóðendur sem mér þóttu sérstaklega áhugaverðir. Nú hafa Abdul El-Sayed, James Talarico, Troy Jackson, Peggy Flanagan, Sherrod Brown og Roy Cooper öll unnið. Úrslitin hjá Mary Peltola í Alaska eru enn óútkljáð.
Ég er sérstaklega ánægður með sigur Abduls í Michigan. Hann verður fyrsti músliminn sem tekur sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings. Maður sem margir vildu afskrifa sem of vinstrisinnaðan og of umdeildan vann þrátt fyrir fordómafullar árásir á trú hans og uppruna. Í þetta sinn töpuðu rasistarnir. Ég fagna því.
Sigur Talaricos í Texas er líka stórmerkilegur. Þar hefur Demókrati ekki unnið kosningu til öldungadeildarinnar síðan 1988. Það eru 38 ár.
En hvað þýðir þetta fyrir framhaldið?
Fyrst þarf að hafa í huga að nýja þingið tekur við 3. janúar 2027. Þá fá Demókratar verkfæri til að veita Trump og stjórn hans aðhald sem hefur sárlega vantað.
Þeir taka við stjórn þingnefnda og geta hafið rannsóknir, krafist gagna og boðað ráðherra, embættismenn og aðra tengda stjórninni til opinberra yfirheyrslna. Þar geta þeir rannsakað meinta (les: bókaða) valdníðslu, spillingu og misnotkun opinbers fjár. Fólk sem hefur komist upp með að svara fáu getur þurft að svara fyrir gjörðir sínar.
Demókratar geta líka stöðvað lagafrumvörp Repúblikana og beitt valdi þingsins yfir fjárveitingum til að krefjast breytinga og setja stjórninni skorður. Meirihlutinn í öldungadeildinni getur hafnað tilnefningum Trumps í embætti sem þurfa samþykki hennar, meðal annars dómara. Losni sæti í Hæstarétti getur hann því ekki lengur treyst á að fá sinn mann samþykktan.
Þetta er töluverð breyting.
Trump er samt enn forseti. Hann getur beitt framkvæmdarvaldinu og neitað að undirrita lög. Til að hnekkja slíku neitunarvaldi þarf tvo þriðju atkvæða í báðum deildum. Demókratar geta því hvorki afnumið vald hans né komið öllum sínum stefnumálum í framkvæmd með einföldum þingmeirihluta.
En nú reynir líka á þá sjálfa. Eins og ég hef áður skrifað hafa Demókratar brugðist almenningi of oft. Það dugir ekki að vinna kosningar á því einu að vera skárri en Trump. Þeir þurfa að berjast fyrir aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu, betri lífskjörum og samfélagi þar sem auður og völd safnast ekki sífellt á færri hendur.
Trump-tíminn er ekki búinn. Hann á rúm tvö ár eftir í embætti og getur enn valdið miklum skaða. En hann er pólitískt laskaður og fær nú þingmeirihluta á móti sér sem getur veitt honum raunverulegt aðhald.
Það eitt er ástæða til að gleðjast. Nú þurfa Demókratar að nota valdið.



