Hoppa í efni

Velferð barna er ekki gróðatækifæri

Sigurður Hólm Gunnarsson | 28.10.2026

Enn berast ömurlegar lýsingar á því hvernig farið er með okkar viðkvæmustu börn. Börn sem þurfa meiri stuðning en flest önnur en fá ekki alltaf það öryggi, þá umhyggju og þá faglegu aðstoð sem þau eiga skilið.

Því miður er fátt nýtt í þessari umfjöllun. Það er kannski það sorglegasta.

Í nýjustu umfjöllun Kveiks lýsir móðir því að dóttir hennar hafi farið út um svaladyr að næturlagi á meðan starfsfólk svaf. Fyrrverandi starfsmenn lýsa skorti á fagfólki. Á sama tíma er fjallað um háar greiðslur fyrir þjónustuna og hagnað fyrirtækja sem sinna þessum börnum.

Háar greiðslur tryggja augljóslega ekki einar og sér góða þjónustu. Það skiptir máli í hvað peningarnir fara og hvort þeir skili sér í faglegu starfi, nægri mönnun og betra lífi barnanna.

Ég hef margsinnis fjallað um þessi mál, bæði meðan ég starfaði innan barnaverndar og eftir að ég hætti. Meðal annars hef ég haldið því fram að starfsmaður eigi aldrei að vera einn á vakt með barni í búsetuúrræði. Það er grundvallaratriði í öryggi bæði barna og starfsfólks.

Samt var þetta lengi látið viðgangast. Þegar ég gagnrýndi fyrirkomulagið var ég tekinn á teppið hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Mér var ekki þakkað fyrir ábendingarnar. Ég var skammaður.

Ég þekki því vel hvernig umræðan getur snúist um að halda rekstrinum innan fjárhagsramma, jafnvel þegar starfsfólk bendir á að aðstæður séu óviðunandi. Þá verður spurningin hvernig megi hagræða frekar en hvernig best sé að sinna barninu.

Það þarf að snúa þessu við.

Vandi barnanna getur verið flókinn og meðferðin vandasöm. En margt af því sem þarf að laga í umgjörðinni er ekki flókið. Þetta eru engin geimvísindi. Það þarf vilja, fagþekkingu og fjármuni til að standa undir þjónustunni.

Ég nefni hér sex atriði sem ættu að vera sjálfsögð:

1. Tryggja mönnun. Aldrei færri en tveir starfsmenn á vakt með barni eða börnum í búsetuúrræði. Fleiri ef þarfir barnanna kalla á það. Þetta þarf líka að gilda þegar starfsmaður veikist eða eitthvað óvænt kemur upp á. Öryggi barna má ekki ráðast af því hvort tekst að fá einhvern til að taka aukavakt. Alltaf þarf að vera til áætlun sem gengur upp.

2. Setja fagmennsku í fyrirrúm. Meirihluti starfsfólks þarf að hafa viðeigandi fagmenntun. Ég hef unnið með frábæru fólki án slíkrar menntunar og veit vel að prófgráða tryggir ekki hæfni eða umhyggju. En það er ekki boðlegt að byggja þjónustu við börn með flóknar stuðningsþarfir að mestu á ófaglærðu starfsfólki. Fræðsla, handleiðsla og stuðningur þurfa líka að vera sjálfsagður hluti starfsins.

3. Hætta að líta á vanda barna sem gróðatækifæri. Velferð barna er ekki áhættufjárfesting. Hagnaðarsjónarmið mega ekki ráða því hversu margir eru á vakt, hvaða hæfni er til staðar eða hvaða þjónustu barn fær.

4. Búa börnunum heimili. Húsnæði, húsgögn og daglegt líf eiga að einkennast af öryggi, hlýju og virðingu. Það þarf ekki að kaupa allt nýtt eða dýrt. Það þarf hins vegar að leggja alúð í umhverfið og hugsa um þarfir barnsins. Þetta er heimili þess.

5. Tryggja opinbera ábyrgð og virkt, óháð eftirlit. Ég tel að hið opinbera eigi að reka þessi úrræði að meginstefnu til. Einkarekstur ætti að vera undantekning og lúta skýrum kröfum um gæði, mönnun og gagnsæi. Rekstraraðili á aldrei að geta aukið hagnað sinn með því að sleppa nauðsynlegri mönnun. Eftirlit þarf að kanna hvernig þjónustan er í raun og fylgja eftir því sem aflaga fer.

6. Láta líðan og framtíð barnanna ráða för. Öll þjónustan á að byggjast á einlægri umhyggju og fagmennsku. Hvert barn þarf markvissan stuðning við að líða betur, efla færni sína og öðlast aukið sjálfstæði á eigin forsendum. Það er ekki nóg að útvega barni stað til að vera á.

Ég starfaði í tólf ár sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga hjá Barnavernd Reykjavíkur. Ég tel mig því þekkja ágætlega hvað þarf til og hvað gerist þegar grunnurinn er ekki í lagi.

Ég hafði sambærilegar skoðanir þá og ég hef nú. Þeim var oft illa tekið og mér bent á að passa fjárhagsrammann. Ég fékk, eins og ég veit að margir aðrir fá enn, kröfur sem ekki fóru saman: Að tryggja öryggi barnanna en halda mig um leið innan fjárhagsramma sem gerði það ekki bara erfitt, heldur ómögulegt.

Það kostar peninga að manna úrræði almennilega, ráða fagfólk og veita góða þjónustu. Við verðum að vera tilbúin að greiða þann kostnað og tryggja að fjármagnið skili sér til barnanna.

Lausnin felst meðal annars í því að hætta að spara þar sem ekki er hægt að spara án þess að skerða öryggi og umönnun. Á það vilja margir stjórnmálamenn og stjórnendur því miður ekki hlusta.

Þar liggur hundurinn grafinn.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (835) →

Fleiri greinar sem tengjast: Börn og menntun

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.