Hoppa í efni

Kapítalisminn er heimsendakölt

Sigurður Hólm Gunnarsson | 30.03.2020

Hvað gerir fólk sem á engan lagalegan rétt á launuðum veikindum í miðjum Covid-19 faraldri? - Það mætir veikt í vinnuna og smitar aðra...

Hvað gerir fátækt fólk sem er ekki sjúkratryggt eða nægjanlega vel tryggt ef það finnur fyrir veikindum? - Það sleppir eða frestar því að fara til læknis og örkumlast eða deyr...

Hvað gerist ef fólk sem þó er sjúkratryggt missir vinnuna? - Það missir í leiðinni þá takmörkuðu sjúkratryggingu sem það hafði...

Þetta er allt að gerast í ríkasta og voldugasta landi heims, Bandaríkjunum núna. Það er sorglegt og í raun ömurlegt að horfa upp á þetta.

Í öllu ríkidæminu eru til kjarnorkuvopn, flugmóðurskip og önnur stríðstól af öllum toga sem gætu tortímt öllu lífi á Jörðinni mörgum sinnum. Á sama tíma eru ekki til nægjanlega mörg greiningar- og lækningatæki til að berjast gegn heimsfaraldri.

Trúðurinn Trump vildi í fyrradag opna allt fyrir páska til að koma vítisvél kapítalismans aftur í gang sem fyrst. Skósveinar hans mættu í fjölmiðla og grátbáðu landa sína að fórna ömmu og afa í nafni markaðarins. Þeir sögðu berum orðum að það væri betra að leyfa eldra fólki að veikjast og deyja en að viðhalda samkomubanni og loka fyrirtækjum tímabundið.

Frjálshyggjukapítalisminn hefur nú opinberað sig endanlega sem heimsendakölt. Í nafni frelsisins eru íbúar fastir í fjötrum fátæktar og sjúkdóma að miklu leyti að óþörfu.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.