Siðmennt hélt afskaplega áhugavert málþing um líknardauða síðastliðinn fimmtudag.
Markmiðið var að fjalla um þetta viðkvæma málefni út frá sjónarhóli heimspekinnar og út frá upplifun aðstandenda. Yfirskrift málþingsins var: „Að deyja með reisn – líknardauði”.
Hægt er að horfa á upptöku af málþinginu hér fyrir neðan:
00:00 – Sigurður Hólm Gunnarsson kynnir fundinn
06:22 – Jóhann Björnsson, heimspekingur – „Er einhver nokkurn tíma betur kominn liðinn en lífs? Um líf og dauða frá sjónarhóli heimspekinnar.“
23:00 – Sylviane Pétursson Lecoultre – Eiginmaður Sylviane var með ólæknandi krabbamein og valdi að deyja líknardauða í Sviss árið 2013.
45:00 – Ingrid Kuhlman – „Pabbi vildi fá að deyja“ – Faðir Ingridar, sem var hollenskur ríkisborgari, var með þeim fyrstu til að fá ósk um líknardauða uppfyllta í Hollandi árið 2002.
1:00:00 – Pallborðsumræður og spurningar úr sal.
1:39:45 – Lokaorð, fundi slitið
Greinar á Skodun.is:
[text-blocks id=“liknardaudi-umfjollun“]