Einelti er alvarlegt ofbeldi sem getur haft alvarlegar langvarandi afleiðingar fyrir þá sem lenda í því. Sem dæmi virðist kvíði og vanlíðan vera 10-20 sinnum algengari hjá eineltisfórnarlömbum auk þess sem þau eru með mun minna sjálfsálit en aðrir. Ýmsar rannsóknir benda til þess einelti geti haft svipuð áhrif á heilsu og líðan þolenda og kynferðisleg misnotkun eða alvarleg vanræksla. Áhrifin geta varað langt fram á fullorðinsár.
Það er til mikils að vinna að sporna gegn einelti á öllum vígstöðvum.
Undirritaður tók þátt í umræðuþætti um einelti á ÍNN á föstudaginn langa. Hægt er að horfa á upptöku af þættinum hér fyrir neðan. Ég hvet áhugasama til að horfa og deila:
Sjá nánar:
- Allt um Einelti – Heimildarmynd um einelti eftir Viðar Frey Guðmundsson
- Einelti – helvíti á jörð – Heimildarþáttur eftir Sigurð Hólm Gunnarsson og Kristbjörn Björnsson
- Umfjöllun og greinar um einelti á Skodun.is