Hoppa í efni

Brynjar Níelsson svarar strámanni

Sigurður Hólm Gunnarsson | 04.01.2014

Brynjar NíelssonKæri Brynjar. Ég vil byrja á því að þakka þér fyrir að gefa þér tíma til svara bréfinu sem ég sendi þér í fyrradag um veraldlegt samfélag. Að því sögðu þá er ljóst að þú ert alls ekki að svara mér heldur einhverjum tilbúnum strámanni. Bréf mitt var tiltölulega skýrt og innihélt einfaldar spurningar. Í staðinn fyrir að svara spurningum mínum beint kýstu að leggja allt kapp á að gagnrýna stefnu sem ég (og Siðmennt) aðhyllist alls ekki.

Nánast allt svar þitt fjallar um meinta andstöðu mína (og Siðmenntar) við fræðslu um kristna trú í skólum.  Þar sem að ég (og Siðmennt) hef alltaf verið hlynntur öflugri fræðslu um kristna trú í skólum kemur þessi áhersla þín mér á óvart.

Brynjar? Ertu að gera mér (og Siðmennt) upp skoðanir viljandi eða vissir þú í raun ekkert um skoðanir mínar (og Siðmenntar) áður en þú ákvaðst að svara? Ég veit ekki hvort svarið kemur betur (eða verr) út fyrir þig.

Í svari þínu segir þú:

„Það virðast margir halda að í trúfrelsi felist að stjórnvöld verði að gæta jafnræðis milli trúarbragða og því megi ekki fræða nemendur um kristin fræði umfram önnur trúarfræði eða lífsskoðanir. Það er mikill misskilningur. „

Eini mögulegi misskilningurinn hér er sá að ég (og Siðmennt) sé á móti fræðslu um kristna trú. Ég hef persónulega ótal sinnum svarað þessum rangtúlkunum í greinum og í fjölmiðlum.  Siðmennt hefur svo reglulega ályktað um að öflug trúarbragðafræðsla sé mikilvæg.  Tökum hér eitt dæmi af fjölmörgum:

„Það er því rík ástæða til að leiðrétta þann útbreidda misskilning að Siðmennt sé á móti fræðslu um kristni eða önnur trúarbrögð. Siðmennt er þvert á móti þeirrar skoðunar að mikilvægt sé að börn séu uppfrædd um helstu trúarbrögð heims. Félagið hefur einnig tekið skýrt fram að eðlilegt sé, vegna menningarsögulegra tengsla, að börn læri meira um kristna trú en önnur trúarbrögð.“ – Sjá:  Siðmennt styður “fræðslu” um kristni í skólum – Greinasafn um skóla og trú. 

Þar höfum við það. Meginuppistaðan í svari þínu er annað hvort byggð á vanþekkingu eða rangfærslum. Þú verður að svara því hvort á við.

Fátt annað í svari þínu er sérstaklega bitastætt. Ég er þó meira en til í að ræða við þig betur þegar þú ert a) búinn að svara betur spurningum mínum úr fyrra bréfi og b) útskýra af hverju þú ferð algerlega rangt með hugmyndir mínar og Siðmenntar um kristinfræðslu í skólum. 

Eins og gefur að skilja er ég orðinn svolítið þreyttur á því að leiðrétta í sífellu rangtúlkanir fólks á afstöðu minni og stefnu Siðmenntar á opinberum vettvangi.  Ég vona að ég sé ekki of kröfuharður þegar ég bið þig um að fara rétt með staðreyndir í opinberri umræðu. 

Bestu kveðjur,
Sigurður Hólm Gunnarsson

Skoða 5 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Sighvatur Jónsson 4. janúar 2014 · á Facebook

    Það er nú yfirleitt þannig í þessari trúarumræðu að þeir sem vita minnst um t.d. Siðmennt og Vantrú hafa sterkustu og háværustu skoðanirnar um þessi félög, svona svipað og þeir sem aldrei höfðu komið í Breiðholtið í gamla daga höfðu mestu fordómana gagnvart því. Brynjar fellur klárlega í þessa gryfju enda gæti hann ekki haldið uppi svona sleggjudómaumræðu ef hann vissi eitthvað um "andstæðinginn", ef svo mætti kalla. Það vill líka oft loða við varnarmenn lélegra málstaða að þeir neyðast til að grípa til upphrópana og rökvillna þar sem rökin vinna beinlínis á móti þeirra málstað og því ekki hægt að beita þeim.

  2. Axel Pétur Axelsson 4. janúar 2014 · á Facebook

    ég er frekar vantrúaður á siðmennt . . . https://www.youtube.com/watch?v=lojoOQquAo0&feature=youtu.be . . .

  3. Arnar Þór Guðmundsson 4. janúar 2014 · á Facebook

    Svo voru einhverjir sakaðir um svartsýni að spá fyrir um svona svar 🙂

  4. Svanur Sigurbjörnsson 4. janúar 2014 · á Facebook

    Dapurt að sjá hæstarréttarlögmann og nú alþingismann sem maður hefði haldið að hefði fylgst með þjóðfélagsumræðu síðasta áratuginn tyggja sömu rangfærsluna um afstöðu Siðmenntar og Vantrúar um trúarbragðafræðslu og svo margir áður hafa verið leiðréttir með bæði í blöðum og á bloggi.

  5. Matthías Ásgeirsson 5. janúar 2014 · á Facebook

    Þess má geta, ef Brynjar þykist hafa ruglast á Vantrú og Siðmennt, að Vantrú hefur aldrei mótmælt (alvöru) kennslu um trúarbrögð í skólum landsins. Vantrú hefur einnig talið eðlilegt að meira sé kennt um krisnti en önnur trúarbrögð í skólum landsins.

    En ætli Brynjar viti svosem ekki betur.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.