Hoppa í efni

Stjórnvöld taki virkan þátt í rafbílavæðingu Íslands

Sigurður Hólm Gunnarsson | 31.07.2013

Ég hef lengi undrast hvers vegna Ísland er ekki algjört forystuland þegar kemur að rafbílavæðingu. Nú þegar eru til sölu flottir rafbílar sem líta nákvæmlega eins út og „venjulegir“ eldsneytisbílar og hafa svipaða eiginleika. Kostnaðurinn við rekstur rafbíla er margfalt minni en við rekstur hefðbundinna bíla.

Ætla má að árskostnaður vegna rafmagns í rafbíla sé í kringum 5-10% af því sem kostar að kaupa bensín á bensínbíla. Þar að auki er fullyrt að kostnaður vegna viðhalds rafbíla sé miklu minni. Sem dæmi eru einungis fjórir hreyfanlegir hlutir í rafmótor á meðan þeir eru um þúsund í hefðbundinni bensínvél.  Í rafbíl er heldur ekki gírkassi eða pústkerfi. Semsagt mun færri hlutir sem geta bilað.

Á Íslandi er mikið til af hreinni orku sem hægt er að nota til að framleiða umhverfisvænt rafmagn. Með því að rafbílavæða Ísland væri hægt að draga úr mengun og um leið spara gjaldeyri sem annars fer í að kaupa og flytja inn olíu og varahluti í flókna eldsneytisbíla.

Í ljósi þess að rafbílavæðing myndi vera þjóðhagslega hagkvæm með því að draga bæði verulega úr kostnaði almennings og fyrirtækja við rekstur ökutækja og með því að draga verulega úr mengun tel ég að hið opinbera ætti að taka virkan þátt í þróuninni.

Hið opinbera  gæti þannig stutt dyggilega við uppbyggingu rafpóststöðva („bensínstöðva“ fyrir rafmagn) um allt land og með því að nýta skattkerfið enn frekar til að gera rafbílinn að aðlaðandi kosti fyrir almenning. Opinberar stofnanir gætu líka verið í fararbroddi í því að rafbílavæða bílaflota sinn.

Fyrir utan allan augljósan sparnað og minni mengun er meira en líklegt að Ísland fengi góða landkynningu fyrir að vera fremst meðal þjóða í notkun umhverfisvænna ökutækja.

Heimildir:

Nánar:

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Morten Lange 31. júlí 2013 · á Facebook

    Já, eitt og annað er betra við rafmagnsbila.
    En ertu búinn að leita að mótrökum, Sigurður ?
    Þau eru vissulega til, og ég hélt reyndar að þú hefðir heyrt af þeim, og jafnvel ætti að geta hugsað þér sum þeirra á eigin spýtum 🙂

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Náttúra og umhverfi

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.