Hoppa í efni

Gálgahraunsmálið illskiljanlega

Sigurður Hólm Gunnarsson | 22.10.2013

Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki alveg reiðina í þessu Gálgahraunsmáli. Í það minnsta á ég erfitt með að hafa einhverja sterka skoðun á því sjálfur. Alla vegana það sterka skoðun að ég nenni að mótmæla eða stofna  klappstýrulið fyrir Vegagerðina. Kannski af því að ég er latte lepjandi 101 íbúi sem drekkur ekki mjólk og er með lögheimili í Grafarvoginum? Maður getur víst ekki haft skoðun á öllu.

Óháð skoðanaleysi mínu á þessu hrauni þá átta ég mig ekki á því af hverju það er ekki hægt að bíða með óafturkræfar framkvæmdir í hrauninu þar til dómstólar hafa úrskurðað um málið? Ég átta mig ekki heldur á því af hverju það þarf tugi lögreglumanna til að fjarlægja friðsama mótmælendur með valdi? Deyr einhver eða slasast þó framkvæmdir stöðvist á meðan beðið er eftir úrskurði dómstóla?

Getur einhver útskýrt þetta mál fyrir mér í hnitmiðuðu máli? Hverjir hafa svona gífurlega mikla hagsmuni af  því að framkvæmdir hefjist strax?

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Ágúst Sveinbjörn Ólafsson 22. október 2013 · á Facebook

    Bara eitt orð yfir þetta mál (þvermóðska) frá öllum aðilum.

  2. Svanur Sigurbjörnsson 22. október 2013 · á Facebook

    http://www.dv.is/.../10/22/svarid-komid-jordin-seltjorn/...

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Náttúra og umhverfi

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.