Fyrirgefið þegar ég segi að mér er alveg sama hvaða hugmyndir forsetinn hefur um Evrópusambandið. Mér er líka sama um hugmyndir forsætisráðherrans, þingmanna, Evrópusamtakanna, Heimssýnar og annarra valdastofnanna.
Ég hef ekkert að gera við hugmyndir valdafólks sem segir mér fyrir verkum. Sérstaklega ekki hugmyndir fólks sem telur sig getað spáð fyrir um framtíðina. Horft í kristalskúlu og vitað fyrir fram hvaða samninga við fáum, rétt eins og það sé laustengt við tíma, rúm og sjálfan raunveruleikann. Fólk sem telur að „vilji fólksins“ skipti máli þegar fjallað er um Icesave en engu máli skipta þegar fjallað er um stjórnarskrá, Evrópusambandsaðild eða virkjanaáform er ekki marktækt.
Það er búið að ræða um blessað Evrópusambandið í næstum aldarfjórðung. Eini fastinn í þeirri umræðu er valdafólk sem þykist vita meira en við hin. Fólk sem vill taka ákvörðun fyrir almenning því venjulegu fólki er ekki treystandi. Nema auðvitað það sé gulltryggt fyrir fram að almenningur sé sammála valdaklíkunni. Þá má almenningur kjósa.
Hættum þessari vitleysu og klárum dæmið!
—
Vinsamlegast skrifið undir þessa áskorun:
http://www.petitions24.com/klarum_daemid
Skoða 8 athugasemdirFela athugasemdir
Það er nokkuð til í þessu...
Heyr heyr!
Takk.
Almenningur kaus nýlega í lýðræðislegum kosningum stjórnmálaflokka sem eru andsnúnir ESB aðild. Samtals hafa þeir flokkar sem eru andsnúnir ESB aðild 45 þingmenn á alþingi eða 71% þingheims ! Höfuð flokkur ESB sinna beið sögulegt kosninga afhroð í þessum sömu kosningum. Þetta getur ekki verið skýrara. ESB málið sem að er nú búið að hanga yfir þjóðinni með litlum sem engum árangri í 4 ár verður nú tekið af dagskrá !
Er algjörlega sammála þér
Mikið er ég sammála þessu
Hvernig er það vinur,vorum við spurð í upphafi hvort ætti að fara í þessa för eða ekki????Nei við vorum ekki spurð um það en það fannst ykkur ESB-sinnunum í góðu lagi en þegar svo núna á að hætta þessu þá farið þið ESB-sinnarnir alveg af límingunum yfir því...................
Í sanleika sagt Sigurður Hólm Gunnarsson þá er mér einnig sama hvaða skoðun þú hefur á ESB, rétt eins og mér er sama hvaða skoðun forsetin hefur á sama efni, ég er bara fegin að þessarri vitleysu er að ljúka og að hún fer ekki að stað aftur nema að við kjósendur gefum grænt ljós á það, nokkuð sem átti að gerast í upphafi málsins. Svo held ég að kjósendur séu full færir að kynna sér málefni ESB án þess valdafólk segi þeim fyrir verkum í þeim efnum.



