Hoppa í efni

Glórulaus vantrauststillaga felld

Sigurður Hólm Gunnarsson | 11.03.2013

Vantrauststillaga Þórs Saari á ríkisstjórnina var glórulaus og stuðningur Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins við hana óskiljanlegur.  Enda var tillagan borin fram „vegna þess að stjórnarmeirihlutinn hefur svikið það loforð og það ferli sem var í gangi til að færa þjóðinni nýja stjórnarskrá, stjórnarskrá sem þjóðin hafði áður samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslu að hún vildi.“

En fyrirsjáanleg lending stjórnarinnar í stjórnarskrármálinu er líka óskiljanleg og jafnvel glórulaus. Eins og ég hef áður sagt þá er ekki hægt að semja um nýja stjórnarskrá við fólk sem vill ekkert með hana hafa.

Eina færa leiðin er að þingið kjósi á þessu þingi um nýja stjórnarskrá. Afstaða þingmanna þarf að vera skýr og ljós fyrir kosningar. Ég sætti mig mun betur við að ný stjórnarskrá verði felld fyrir opnun tjöldum en að hún verði kaffærð inn í luktum reykfylltum herbergjum inn á Alþingi. Ég endurtek að það verður aldrei sátt um nýja stjórnarskrá. Ekki nema að Sjálfstæðisflokkurinn og aðrir íhaldsmenn hverfi af yfirborði jarðar.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Stjórnmál og lýðræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.