Hoppa í efni

Trúleysingjar eru oft sjálfum sér verstir

Sigurður Hólm Gunnarsson | 10.06.2007

Kápa bókar Roberts J. Sawyer: Calculating God.Robert J. Sawyer, sem er minn uppáhalds vísindaskáldsagnarithöfundur, skrifar afar áhugaverðar greinar um neikvæða upplifun sína af trúleysingjum á vefsíðu sinni www.sfwriter.com. Sawyer, sem sjálfur er trúleysingi og þróunarsinni, segir t.a.m. frá því hvernig hann hefur verið harðlega gagnrýndur af trúleysingjum á blaðinu „Skeptical Inquirer“ fyrir það eitt að fjalla um afstöðu sköpunarsinna í bókum sínum. Sawyer er þeirrar skoðunar, rétt eins og ég, að trúleysingjar séu oft sjálfum sér verstir. Óbilgjarn málflutningur þeirra verður oft til þess að fólk álítur trúleysingja alla vera hrokafulla og lokaða.

Sem siðrænn húmanisti, og þar með trúleysingi, hef ég oft haft áhyggjur af málflutningi trúleysingja. Ég er sammála Sawyer að margir trúleysingjar virka afskaplega hrokafullir og þeir eiga það til að tala niðrandi til þeirra sem eru þeim ekki sammála. Þetta er leiðinlegt því langflestir þeir trúleysingjar sem ég þekki eru opnir, áhugasamir um ólíkar lífsskoðanir og forvitnir um undur heimsins.

Oft óska ég þess að fleiri trúleysingjar tækju Carl Sagan heitinn sér til fyrirmyndar og einbeittu sér að því að fjalla jákvætt um lífsskoðun sína án þess að gera lítið úr öðrum að óþörfu.

Greinar um trúleysi eftir Robert J. Sawyer
First Letter to The Skeptical Inquirer
(Sawyer gagnrýnir umfjöllun Skeptical Inquirer um bók sína Calculating God)

Second Letter to The Skeptical Inquirer
(Sawyer gagnrýnir umfjöllun Skeptical Inquirer um bók sína Calculating God)

A Bright Idea for Atheists
(Sawyer fjallar um hroka sumra trúleysingja sem vilja kalla sig Brights)

Science and God
(Hugleiðingar um vísindi og hugmyndina um guð)

Umfjöllun um bók Richard Dawkins „The God Delusion“
(Sawyer, sem sjálfur er trúleysingi, valdi hana sem bók ársins 2006.)

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.