Hoppa í efni

Fundur með Heimsþorpi

Sigurður Hólm Gunnarsson | 08.05.2004

Samtökin Heimsþorp gegn kynþáttafordómum héldu málfund Í Alþjóðahúsinu um ný útlendingalög í dag. Ég var fenginn til að vera annar frummælenda á fundinum en sá sem talaði á móti mér var hinn geðþekki sjálfstæðismaður, Jón Hákon Halldórsson. Málfundurinn gekk nokkuð vel að mínu mati og sköpuðust líflegar umræður eftir að ég og Jón höfðum lokið við að flytja framsöguræður okkar.


Jón Hákon lýsti þeirri skoðun sinni (og margra ungra sjálfstæðismanna) að hann væri hlynntur algerlega frjálsum fólksflutningum á milli landa og væri ekki almennt séð stuðningsmaður hertra reglna. Hann sagði einnig að honum hefði þótt málflutningur þeirra sem mótmæltu frumvarpinu hvað harðast hafa verið ónákvæmur og byggður á misskilningi.

Í ræðu minni reifaði ég afstöðu mína í stuttu máli og benti á að mótmælin gegn frumvarpinu hefðu ekki byggst á misskilningi. Í það minnsta hefðu þeir sem stóðu að mótmælunum ekki misskilið frumvarpið. Hugleiðingar mínar um meintan misskilning mótmælenda frumvarpsins er hægt að lesa í grein minni „Misskilin misskilningur“ hér á Skoðun.

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Stefán Friðriksson 9. maí 2004

    eftir málfundinn sköpuðust líflegar umæður og ég er sammála því að hann hafi heppnast ágætlega.
    en þó fylgdi sá galli gjöf njarðar (ef maður á að halda í þann málshátta þema sem átti sér stað á fundinum) að talsmaður (ef svo má kalla) íhaldsins var bara ekkert sérstaklega íhaldsamur. né heldur var hann að verja neitt sérstaklega gjörðir flokksbræðra sinna með nýsamþykktum lögum.
    jón hákon hamraði á meintum misskilningi undirskriftasafnara til stuðnings umsagnar fjölmenningarráðs og félags kvenna af erlendum uppruna og virtist byggja það á eitthverju allt öðru en greinum þeirra.

  2. Jón Hákon Halldórsson 10. maí 2004

    ég byggði umfjöllunina mína um rangfærslur í gagnrýni á frumvarpið á þeim röngu fullyrðingum sem koma meðal annars fram á heimasíðu undirskriftanna og á rangri fullyrðingu sem ung stúlka viðhafði í kvöldfréttum eftir málfundinn á iðnó

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Mannréttindi og jafnrétti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.