Hoppa í efni

Barist fyrir jafnri stöðu trúar- og lífsskoðanahópa

Sigurður Hólm Gunnarsson | 04.11.2003

„Til að vinna að þjóðfélagi mannréttinda, kvenfrelsis og jafnréttis vill Samfylkingin jafna félags, laga- og fjárhagslega stöðu trúar og lífsskoðunarhópa.“

Svona hljómar ein setning í nýsamþykktri stefnu Samfylkingarinnar um mannréttindi, jafnrétti og kvenfrelsi. Í umræðu sem fram fór í málefnahóp um mannréttindi á landsfundi Samfylkingarinnar um helgina var þessi tillaga samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Baráttumenn fyrir trúfrelsi á Íslandi hljóta allir að fagna þessari stefnu.

Í stefnu Siðmenntar í trúfrelsismálum segir meðal annars:

Aðskilnaður ríkis og kirkju felur m.a. í sér að jafna lagalega, fjárhagslega og félagslega stöðu þeirra hópa sem aðhyllast ólíkar lífsskoðanir. Öðruvísi verður trúfrelsi, og þar með frelsi einstaklingsins, ekki tryggt.

Ég tel víst að enginn stjórnmálaflokkur hafi áður samþykkt svo skýra stefnu í trúfrelsismálum. Spennandi verður að sjá hvernig Samfylkingin ætlar að koma stefnu sinni í framkvæmd.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (854) →

Fleiri greinar sem tengjast: Efnahagur og atvinnulíf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.