Svíar aðskilja ríki og kirkju

Skoðun-Logo
Logo

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson ritstjóri Skoðunar sem stofnað var þann 23. júní 1999.

30/12/1999

30. 12. 1999

Formlegur aðskilnaður ríkis og kirkju mun eiga sér stað í Svíþjóð nú í upphafi næsta árs. Þetta eru góðar fréttir fyrir þá sem aðhyllast trúfrelsi en eru andvígir óþarfa og óheppilegum ríkisafskiptum. Aðskilnaður ríkis og kirkju hér á landi er ekki spurning um hvort heldur hvenær. Það er ef Íslendingar vilja vera í hópi siðmenntaðra […]

Formlegur aðskilnaður ríkis og kirkju mun eiga sér stað í Svíþjóð nú í upphafi næsta árs. Þetta eru góðar fréttir fyrir þá sem aðhyllast trúfrelsi en eru andvígir óþarfa og óheppilegum ríkisafskiptum. Aðskilnaður ríkis og kirkju hér á landi er ekki spurning um hvort heldur hvenær. Það er ef Íslendingar vilja vera í hópi siðmenntaðra þjóða.


Allt of margir falla í þá gryfju að gera ráð fyrir mjög einsleitu samfélagi á Íslandi og telja því eðlilegt að hér sé starfrækt þjóðkirkja á kostnað skattgreiðenda. Fyrir rétt rúmu ári voru 89,4% Íslendinga skráð í þjóðkirkjuna sem er svipað hlutfall og er í Svíþjóð en 90% Svía eru skráðir í sænsku þjóðkirkjuna. Hér, rétt eins og í Svíþjóð, er meirhluti landsmanna* hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju þannig að það er greinilega margt líkt með aðstæðum hér og í Svíþjóð.

Það er einlæg von mín að aðskilnaður ríkis og kirkju í Svíþjóð flýti fyrir samskonar aðskilnaði hér á landi.

*Um 63% Íslendinga eru hlynntir aðskilnaði ríkis og kirkju samkvæmt könnun sem framkvæmd var í september árið 1998.