Hoppa í efni

Af hjálækningum og kukli

Svanur Sigurbjörnsson | 07.11.2013

Í dag flutti ég fyrirlestur í upphafstíma Fræðadaga Heilsugæslunnar sem haldinn er á Grand Hótel í dag og á morgun. Erindið var um hjálækningar og kukl (sem er ekki það sama) og hvernig staðan er í dag í þeim málum hérlendis.  Einnig um það hvað megi gera til að sporna við uppgangi heilsusvindls og meðferða sem geta afvegaleitt fólk og valdið því skaða.  Fór ég nokkuð vítt og breitt yfir sviðið.  Mikilvægt er að skilgreina hvað felst í því „óhefðbundna“ þannig að það megi halda uppi rökréttri umræðu um þessi mál og ég geri tilraun til þess í fyrirlestrinum.

Smá nasasjón af því sem kom fram í fyrirlestrinum kom fram í tíu fréttunum í kvöld.

Fyrir ykkur sem viljið kynna ykur efni fyrirlsetursins er glæruskjalið sem fyrirlesturinn er byggður á niðurhalanlegur með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.  (Powerpoint Show um 4.3 Mb).

Kukl og gervivísindi-f.heimilislækna2013

Góðar stundir!

Skoða 4 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Samúel Þór Hjaltalín 8. nóvember 2013 · á Facebook

    Ég er ekki sammála þessu að öllu leiti. Ef það eru ekki vísindaleg rök á bakvið læknsffræðin, inna gæsalappa, þá eru það ekki lækningar! Allt annað er kukl og svindl! alveg sama hvað þú kallar það.

  2. Hrafnhildur Halldórsdóttir 8. nóvember 2013 · á Facebook

    Þakka þér fyrir góðan fyrirlestur í gær á fræðidögum. Það er nauðsynlegt fyrir bæði heilbrigðisstarfsfólk og almenning að vera vel upplýst. Framsetningin hjá þér var skýr, það er alveg á hreinu að lækningar og hjúkrun byggja á vísindalegum þekkingargrunni, Heilbrigðisstarfsmönnum ber að standa vörð um það og gera kröfur um að " nýjar" kenningar sem vilja slæðast inn, séu sannreyndar með rannsóknum. Frábær tilvitnun að " Extraordinary claims, needs extraorindary evidence" .

  3. Karl Love 8. nóvember 2013 · á Facebook

    Þú ættir þá að flytja pistil um eitthvað sem kallað er "geðlækningar". Sú grein á ekkert skylt við læknisfræði því þú getur ekki fundið einn einasta "geðlækni" í veröldinni sem hefur "læknað" einhvern af geðsjúkdómi.
    VIðurkenndir "geðlæknar" hafa þurft að viðurkenna þessa staðreynd því allar þeirra tilgátur og tillögur um hvað er að einhverjum eru þeirra álit sem eru ekki byggð á neinum vísindalegum rannsóknum eins og við skilgreinum vestræn vísindi.
    Réttnefni á þessa kuklara ætti að vera; lögverndaðir læknadópssalar. Það er nefnilega ekki "lækning" að dópa einhvern í eitthvað ástand sem kallast gæti normalt. Hvað svo sem normalt er.
    Svo finnst mér hroki vestrænna lækna yfirgengilegur þegar kemur að grasalækningum og öðrum aðferðum sem fólk kýs að beita sér til bóta þó þær aðferðir hafi reynst ágætlega í þúsundir ára.
    Það er orðið þannig að læknir í dag ávísar misgóðum lyfjum á færibandi þangað til hann dettur niður á eitthvað sem virkar aðeins.
    Við skulum ekkert fara út í umræðu …

  4. Ingibjörg Gunnlaugsdóttir 8. nóvember 2013 · á Facebook

    Hvað með hin "hefðbundunu" lyf - þau veita oft líka "wellness" effect= vellílaðan? En lækna samt ekkert þegar upp er staðið. Það er ekki lækning ef að viðkomandi þarf að vera á "hefðbundnum" lyfjum alla sína æfi til að viðhalda sinni heilsu- þá heitir það "viðhald" en ekki "lækning"...þannig..hver er munurinn á "hefðbundnu kukli" og "óhefðbundnu kukli" þegar upp er staðið.... Samanber þetta hér - Former Internet Pharmacist Sentenced in Fake Drug Case http://online.wsj.com/.../SB10001424127887324442304578232...
    Kanski hverjir eiga hlutabréf í lyfjaframleiðslu fyrirtækjum og selja tæki og tól til "hefðbundna" vísindageirans..Því að það sem hefur jú fleygt fram í þeim "hefðbundnu" er að þau eru í raun ekkert orðin "hefðbundin" í dag..eða er það "hefðbundin" skurðaraðgerð að robot skeri skrokkinn á manni upp..Þannig að tæknivæðingin innan læknageirans hefðbundana er það eina sem hefur fleygt fram en ekki þar með sagt að lækna fólk af einhverjum sjúkdómum..en þessum tækniundrum öllum fyl…

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Svanur Sigurbjörnsson

Allar greinar höfundar (17) →

Fleiri greinar sem tengjast: Vísindi, gagnrýnin hugsun og tækni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.