Rafmagnsvæðum bílaflota Íslands
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Umhverfismál
Viðbrögð: Ummæli (

Nú er tíminn til að gera Ísland að forystulandi í notkun rafmagnsbíla. Það er raunhæfur möguleiki að rafmagnsvæða allan íslenska bílaflotann á nokkrum árum öllum til hagsbóta. Ísland er land umhverfisvænnar orku og mikillar tækniþekkingar og mjög öflugir rafmagnsbílar eru nú þegar framleiddir (nánar um það hér fyrir neðan). Það eina sem þarf er búa þeim viðunandi umhverfi.
Það er sérkennilegt að nú þegar „vinstri/græn“ ríkisstjórn er við völd hér á landi í fyrsta sinn sé lítið sem ekkert fjallað um umhverfismál. Allt púður fer í að skera niður velferðarkerfið til að borga skuldir sem auðmenn hafa skilið eftir sig og í fimleikaæfingar til að þóknast Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum útvörðum auðvaldsins. Niðurlæging Íslendinga, og vinstrimanna sérstaklega, er algjör.
Ekki bara umhverfismál
Hröð og markviss áætlun um rafmagnsvæðingu bílaflota Íslands yrði ekki einungis mikilvægt skref í umhverfismálum heldur einnig frábær landkynning. Það er ekki vanþörf á að bæta ímynd Íslands eftir atburði síðustu missera. Brennuvargar í jakkafötum hafa skilið eftir sig sviðna jörð og brunafýlan finnst langt yfir landhelgina.
Hvers vegna Ísland?
Allar forsendur eru fyrir því að Ísland taki að sér forystu í notkun rafmagnsbíla. Ólíkt flestum öðrum löndum er hér næg umhverfisvæn orka. Við getum framleitt rafmagn í miklu magni án þess að brenna kol eða með því að nota aðrar mengandi aðferðir. Ísland er fámenn eyja með tiltölulega gott vegakerfi. Tækniþekking hér er mikil, menntun landsmanna góð og aðgangur að rafmagni til fyrirmyndar víðs vegar um landið.
Hvað þurfa stjórnvöld að gera?
Það eina sem þarf til er ákvörðun stjórnvalda og tímasett áætlun um hvernig skuli gera Ísland að forystulandi í notkun rafmagnsbíla. Hér er einföld hugmynd að áætlun.
- Setja markmið um fjölda rafmagnsbíla hér á landi á næstu 10-20 árum.
- Safna upplýsingum um kosti og galla rafmagnsbíla og kynna þær niðurstöður.
- Vera í sambandi við helstu framleiðendur rafmagnsbíla og óska eftir samstarfi.
- Gera höfuðborgina rafmagnsbílavæna með því að setja upp „rafstöðvar“ víðsvegar um borgina (þar sem hægt er að fylla bílinn að rafmagni og láta skipta um batterí ef þarf).
- Afnema alla tolla og gjöld á umhverfisvæn farartæki og jafnvel hækka tolla á nýjar mengandi bifreiðar.
- Hugsanlega niðurgreiða rafmagnsbíla til að tryggja að þeir séu ódýrari í innkaupum en hefðbundnir bílar.
- Gera kaup á rafmagnsbílum meira aðlaðandi með ýmsum aðgerðum. T.d. með útgáfu „grænna korta“ sem gerir eigendum rafmagnsbíla kleyft að leggja ókeypis í bílastæði í miðbænum.
- Stefna að því að selja rafmagnsbílaeigendum raforku á stóriðjuverði, eða því sem næst, þegar fram líða stundir.
Kostnaðurinn við allar þessar aðgerðir þarf ekki að vera mikill á meðan hagnaðurinn fyrir þjóðarbúið gæti orðið gríðarlegur til lengri tíma. Til að mæta upphafskostnaði er hugsanlegt að selja rafmagn á aðeins hærra verði til að greiða fyrir uppbyggingu „rafstöðva“ og annarrar þjónustu víðs vegar um landið. Flestir tækju því vel enda rafmagn margfalt ódýrara en bensínið. Það ætti að vera, í það minnsta, tíu sinnum ódýrara að „fylla“ rafmagnsbíl en bensínbíl. Sparnaðurinn fyrir heimilin í landinu gæti því orðið gríðarlegur.
Það má engan tíma missa. Ef Íslendingar vilja taka forystu í þessum efnum þarf að hefjast handa strax.
Upplýsingar um rafmagnsbíla
Að lokum er ekki úr vegi að benda á gagnlegar upplýsingar um rafmagnsbílatæknina og hvað er í boði. Hér fyrir neðan er að finna bæði tengla á gagnlegar vefsíður og nokkur myndbönd. Ég mæli sérstaklega með að lesendur horfi á myndina „Who Killed The Electric Car?“ en hún fjallar um hvernig GM (General Motors) og aðrir bílaframleiðendur hafa komið í veg fyrir almenna útbreiðslu rafmagnsbíla. Fyrirlestur Shai Agassi um fyrirtæki hans Better Place og kosti rafmagnsbíla er einnig afar áhugaverður.
Mynbönd
Vefsíður
- Topp tíu: bestu rafmagnsbílarnir
- Umfjöllun um nokkrar tegundir rafmagnsbíla
- Tesla Motors (rafmagnsbílaframleiðandi)
- Better Place (þjónusta fyrir rafmagnsbíla)
Hver er þín skoðun?
14 athugasemdir
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Ég setti „Like“ við þessu á Facebook hjá þér vegna þess að þetta er mikilvæg umræða, en ég er ekki sammála því að rafmagnsvæðing bílaflotans fái minni athygli en hún eigi skilið.
Rafmagnsbílar eru hluti af gamla hugsun. Gamla talsýn um einkabílar sem vandalausa heildarlausn í samgöngum, og það líka í þéttbýli.
„Hreinna“ einkabílar eru bara lítill hluti lausnarinnar, og bara á nokkrum sviðum. Þetta er til dæmis meðal dýrustu leiðirnar til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, samkvæmt nýlegri skýrslu unnið á vegum nefndar Umhverfisráðuneytisins. Að minnka losun með því að efla hjólreiðar gefur þvert á móti nettó hagnað, segir í skýrslunni. Meðal annars vegna þess að auknar hjólreuðar vinna skörungslega gegn eitt af stærstu og dyrustu heilbrigðisvandamálum samtímas, sem er hreyfingarleysið.
http://www.umhverfisraduneyti.is/utgefid-efni/nr/1442
Þú talar um landkynning. IceSave og hrunið voru líka landkynning
Strætó á metani og rafmagni, og reiðhjól með hjálpamótór eru hins vegar miklu ótvíræðara skref í átt til sjálfbærnis. Svo ekki sé talað um að aðlaga skatta og fleiri sem núna ýta undir því að fólk aka til vinnu í þéttbylinu en letja til þess að hjóla, ganga, nota almenningssamgöngur ( eða stunda fjarvinnu að einhverju leiti ) .
Meira um markaðsstarf og ímynd seinna…vonandi
Ég er sammála einum punkti á listanum : „Safna upplýsingum um kosti og galla rafmagnsbíla og kynna þær niðurstöður.“
En þá þarf að líta til heildarmyndarinnar, til sjálfbærra þróunar á heimsvísu og framtíð til 100 ára. Skýrlsan sem ég nefndi er eitt skref í þessa átt.
Það eru fullt af upplýsingum á vefnum sem styðja þessu, en það þarf að grafa aðeins. Sölumaskinan er ekki eins öflug fyrir því sem menn ekki sjá fram á að selja sem einum sexí pakka og þar sem þar að auki vanta stærstu og sterkustu fyrirtækin og auglýsingahefðin með í liðinu.
En á þessu hóp-bloggi, er sífellt að bætast við efni í þessari átt :
http://worldstreets.org
Ég er skráður sem tengiliður, en hef því miður ekki sent neitt inn á þetta blogg enn sem komið er.
Skynja lesendur hæðnina í þessari færslu ( Worlstreets er med redirect á þessu bloggi ) :
http://newmobilityagenda.blogspot.com/2009/07/solving-humanitys-most-pressing.html
Málið er að bílinn er kominn til að vera. Annað er óskhyggja. Auðvitað á að efla aðra samgöngumáta, hef alltaf verið fylgjandi því. Hef prufað strætó, leigubíla, hjól og gengið. Persónulega finnst mér bíllinn bestur og meirihluti manna er mér sammála. Þetta er þó algert aukaatriði. Aðalatriðið er að það er alger óþarfi að gera út bensínbíla í landi fullu af hreinni orku þegar nú þegar er til tækni til að gera öfluga rafmagnsbíla. Minni mengun (og þar af leiðandi minni óþægindi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur), ódýrara fyrir neytendur, sparnaður fyrir hið opinbera til lengri tíma o.s.frv. Eina sem stendur í vegi fyrir þróuninni er vilji stjórnvalda og hagsmunir ákveðinna stórfyrirtækja sem græða á olíu.
Að stórauka bílaflotann er óskhyggja, æoháð eldsneytis. Við eigum bara eina jörð og einn líkama. Umferðarslys af völdum bílstjóra drepa þegar milljón manns á ári og er spáð griðarlegum aukningi ef stefnan verði óbreytt. En hreyfingarleysi drepa miklu fleiri , amk innan OECD-ríkja.
Hvernig væri þá að leggja áherslu að efla umferðaröryggi með betri vegum og tækni (sem er til) til að draga úr umferðarslysum?
Ég hef mikla samúð og skilingum með hjólaköppum eins og þér en því miður er lausnin ekki að fá alla til að hjóla. Það mun einfaldlega ekki gerast. Sérstaklega ekki á Íslandi þar sem veðrið er eins og það er.
Enginn að tala um að allir skuli hjóla
Skil eki hvaðan sú misskilning sé komin. 
Nei, heimurinn er ekki svartur og hvítur. Heldur ætti að ýta undir hjólreiðum sem lausn enn frekar en rafmagnsbíla, því ávinningurinn yrði svo miklu margþættari.
En peningarnar, sexí auglýsingar og ákveðið 2007 hugafar ræður för… En ef við fengjum bæði heildarfækkun bíla og fjölgun rafmagnsbíla ásamt aukningu í hjólreiðum, þá yrði ég vongóður og glaður
Morten, þetta er ekki spurning um „annað hvort eða“, að stuðla að rafbílavæðingu gerir á engan hátt lítið úr hjólreiðum sem valkost fyrir þá sem það kjósa. Það er bara einföld staðreynd að það geta ekki allir notað reiðhjól til að sinna sínum erindum, hvort sem er vegna fjarlægða eða annars. Aukinn hlutur rafbíla mun verða alfarið á kostnað reykspúandi bensín- og díselbíla en ekki reiðhjóla.
Jú reyndar, Jóhann. Óbeint. Höfum séð það ítrekað að umhverfisvænir bílar hafa yfirskyggað aðra umfjöllun um Evrópska samgönguviku í Reykjavík. Sem dæmi. Ef sömu kraftar hins opinbera urðu lagt í eitthvað sem virkilega er veæ í áttina að sjálfbærni, þá væri það miklu, mun betra nýtring á peninga og tíma hins opinbera.
Hjólreiðar í bland við almenningssamgöngur og bílaleigur, taxi oþh eru raunhæfara kostur en að einblína á bílana. Ef allir mundu keyra bíla þá væri umferðarteppa alla daga, kannski 4 tíma á dag, og sá sem væri að hjóli mundi þjóta framhjá.
Sæll.
Ég minni á að rafmagnsbílar eru engin framtíðarspeki – hér á landi hafa rafmagnsbílar verið til sölu í 2 ár. 16. september kynnum við næstu kynslóð af REVA bílnum sem er glæsilegur bíll. Hægt verður að kynna sér hann á vefslóðinni http://www.reva.is.
Aðeins um þessa áætlun þína:
Setja markmið um fjölda rafmagnsbíla hér á landi á næstu 10-20 árum. Þetta eru allir stjórnmálaflokkar (og amma þeirra) endalaust að gera (t.d. eru til plön frá upphafi árs frá Samfylkingunni en þeir hafa ekki gert neitt síðan). Endalausar áætlanir en engar efndir. Til að rafmagnsbílum fjölgi á götunum þarf almenningur að kaupa sér rafmagnsbíla, en ekki segja að aðrir ættu að gera það. Einfalt!
Safna upplýsingum um kosti og galla rafmagnsbíla og kynna þær niðurstöður. Það er margbúið að gera þetta. T.d. hefur Orkuveitan tvö ár í röð veitt [fáránlega háa] styrki til einstaklinga sem gerðu akkúrat þetta. Niðurstöðurnar hafa verið birtar.
Vera í sambandi við helstu framleiðendur rafmagnsbíla og óska eftir samstarfi. Hvernig samstarfi? Af hverju þarf meira samstarf en að hér séu bílaumboð sem eru til í að flytja bílana inn ef kaupendur fást?
Gera höfuðborgina rafmagnsbílavæna með því að setja upp „rafstöðvar“ víðsvegar um borgina (þar sem hægt er að fylla bílinn að rafmagni og láta skipta um batterí ef þarf). Það eru hleðslustaurar nú þegar við helstu verslunarkjarna. Þá þarf hins vegar örsjaldan að nota, því þó 50km drægi (eins og á „gamla“ REVA bílnum) hljómi lítið endist það yfirleitt auðveldlega daginn og jafnvel í tvo daga. Næsta kynslóð rafmagnsbíla fer allavega 120km á hleðslunni og þá er í raun algjör óþarfi fyrir 99% af rafmagnsbílaeigendum að hlaða yfir miðjan daginn.
Afnema alla tolla og gjöld á umhverfisvæn farartæki og jafnvel hækka tolla á nýjar mengandi bifreiðar. Þú verður aðeins að vinna heimavinnuna þína betur. Það eru engir tollar á rafmagnsbílum. Þannig hefur það blessunarlega verið í nokkur ár. Hins vegar er fullur vsk. á rafmagnsbílum sem fólk má gjarnan hjálpa mér að hvetja stjórnmálamenn að fella niður.
Hugsanlega niðurgreiða rafmagnsbíla til að tryggja að þeir séu ódýrari í innkaupum en hefðbundnir bílar. Það kæmi að stóru leyti með vsk-niðurfellingunni, sem ég held að væri alveg nóg og lágmarks-kostnaður fyrir skuldugt ríki.
Gera kaup á rafmagnsbílum meira aðlaðandi með ýmsum aðgerðum. T.d. með útgáfu „grænna korta“ sem gerir eigendum rafmagnsbíla kleyft að leggja ókeypis í bílastæði í miðbænum. Aftur furða ég mig á því að þú hafir ekki unnið heimavinnuna þína. Rafmagnsbílar, eins og aðrir „lítið mengandi“ bílar (litlir bensín- og díselbílar) mega leggja frítt við stöðumæla og hafa mátt í rétt um 2 ár.
Stefna að því að selja rafmagnsbílaeigendum raforku á stóriðjuverði, eða því sem næst, þegar fram líða stundir. Rafmagn á Íslandi kostar skít og kanil. Það er algjör óþarfi að gefa afslátt af því. Mig grunar að þú vitir ekki hversu litla orku rafmagnsbíll notar. Raforkuverð fyrir allan innanbæjarakstur er ca. þúsundkall á mánuði. Ég held nú að Orkuveitan megi hirða þann þúsundkall án þess að gefa afslátt.
Takk fyrir þessar upplýsingar Bragi Þór. Rétt hjá þér að ég er ekki alvitur um rafmagnsbíla og ekki fór ég í mikla rannsóknarvinnu við vinnslu þessarar greinar. Þetta eru bara hugrenningar mínir um mál sem er lítið og illa kynnt hér á landi. Flestir sem ég hef talað við halda að rafmagnsbílar virki ekki, springi í loft upp við minnsta tækifæri og fáránlega dýrir í rekstri. Eitthvað hefur því farið úrskeiðis við að kynna þennan valkost.
Mitt framlag er bara að ýta við umræðunni.
Takk fyrir það. Þó er mikilvægt að ýta ekki við umræðunni með enn meiri rangfærslum en þegar eru í gangi.
Rafmagnsbílar hafa í sjálfu sér ekkert verið kynntir illa. Hins vegar hafa ekki verið settir neinir milljarðar í auglýsingar – sem ég held að fólk hljóti að sjá að hefði verið vitleysa, því stóru umboðin gerðu það öll og eru öll
Takk fyrir það. Þó er mikilvægt að ýta ekki við umræðunni með enn meiri rangfærslum en þegar eru í gangi.
Rafmagnsbílar hafa í sjálfu sér ekkert verið kynntir illa. Hins vegar hafa ekki verið settir neinir milljarðar í auglýsingar – sem ég held að fólk hljóti að sjá að hefði verið vitleysa, því stóru umboðin gerðu það öll og eru öll meira og minna farin á hausinn.
Það er vonlaust að sannfæra fólk sem finnur rafmagnsbílum allt til foráttu að það hafi rangt fyrir sér – því rafmagnsbílar hafa aldrei átt við það að stríða að þeir „virki ekki, springi í loft upp við minnsta tækifæri og [séu] fáránlega dýrir í rekstri.“ Því er vandamálið það að, eins og með svo margt annað, fólk ákveður að fullyrða hitt og þetta um hina ýmsustu hluti án þess að hafa hundsvit á því sem það er að tala um og nennir ekki einu sinni að leita sér upplýsinga.
Allir þeir sem vilja í raun kynna sér rafmagnsbíla geta það á tiltölulega einfaldan máta. Mannskepnan á það til að vera á móti breytingum prinsippsins vegna og tekur það því sem persónulegri árás ef það er gefið í skyn að það sé mögulega eitthvað að ákvörðun þess að keyra um á Land Cruiser í innanbæjarakstrinum. Því er betra að ráðast á lítilmagnann (rafmagnsbílana) og þykjast stórir menn á sínum stóru fínu (sem mér finnast reyndar ljótir) bílum. Sorglegt en satt.
“Þetta eru allir stjórnmálaflokkar (og amma þeirra) endalaust að gera”
Stjórnmálaflokkar geta ályktað um allt og ekkert. Það sem ég lagði til var að stjórnvöld (ekki það sama og stjórnmálaflokkar) settu tímasetta áætlun um fjölgun rafmagnsbíla. Slíkt hefur verið gert í öðrum löndum.
„Það er margbúið að gera þetta. [kynna kosti og galla rafmagnsbíla]. Niðurstöðurnar hafa verið birtar.“
Það er búið að kynna niðurstöðurnar það vel að fæstir vita nokkuð um rafmagnsbíla. Einstaka áhugamaður veit eflaust heilmikið en Jón og Gunna verðandi bílaeigendur vita minna.
„Hvernig samstarfi? Af hverju þarf meira samstarf en að hér séu bílaumboð sem eru til í að flytja bílana inn ef kaupendur fást?“
Nú ert þú væntanlega í buisness og sérð ekki þinn hag í því að aðrir séu hvattir til að koma inn á markaðinn. Ég held þó að með því að bjóða sem flestum fyrirtækjum sem framleiða vistvæn farartæki góða aðstöðu hér sé hægt að flýta fyrir ferlinu.
„Það eru hleðslustaurar nú þegar við helstu verslunarkjarna. Þá þarf hins vegar örsjaldan að nota, því þó 50km drægi (eins og á „gamla“ REVA bílnum) hljómi lítið endist það yfirleitt auðveldlega daginn og jafnvel í tvo daga. Næsta kynslóð rafmagnsbíla fer allavega 120km á hleðslunni og þá er í raun algjör óþarfi fyrir 99% af rafmagnsbílaeigendum að hlaða yfir miðjan daginn.“
Þú ert eitthvað að misskilja. Ég var að tala um rafmagnsvæðingu bílaflota Íslands. Til þess að það sé raunhæft verður að búa eigendum slíkra farartækja upp á sambærilega þjónustu og nú er í boði fyrir bensínbíla. Þó ég skrifi ekki „lærðar“ greinar um þessi mál þá veit ég að slík uppbygging hefur verið í umræðunni víðs vegar um heim.
„Þú verður aðeins að vinna heimavinnuna þína betur. Það eru engir tollar á rafmagnsbílum. Þannig hefur það blessunarlega verið í nokkur ár. Hins vegar er fullur vsk. á rafmagnsbílum sem fólk má gjarnan hjálpa mér að hvetja stjórnmálamenn að fella niður.“
Ágætt að heyra að ekki séu tollar á rafmagnsbíla. Ég átti almennt við gjöld hins opinbera. Að sjálfsögðu að draga úr vsk ef það eykur eftirspurn.
„Það kæmi að stóru leyti með vsk-niðurfellingunni, sem ég held að væri alveg nóg og lágmarks-kostnaður fyrir skuldugt ríki.“
Kann að vera. Ég var einfaldlega að benda á yfirvöld þurfa að skapa samkeppnishæft umhverfi fyrir rafmagnsbíla.
„Aftur furða ég mig á því að þú hafir ekki unnið heimavinnuna þína. Rafmagnsbílar, eins og aðrir „lítið mengandi“ bílar (litlir bensín- og díselbílar) mega leggja frítt við stöðumæla og hafa mátt í rétt um 2 ár.“
Ég verð að viðurkenna að þetta vissi ég ekki. Einhverntímann sá ég einhver stæði fyrir umhverfisvæna bíla en ég einfaldlega vissi ekki að þeir mættu leggja alls staðar ókeypis. Flott ef svo er (illa kynnt samt).
„Rafmagn á Íslandi kostar skít og kanil. Það er algjör óþarfi að gefa afslátt af því. Mig grunar að þú vitir ekki hversu litla orku rafmagnsbíll notar. Raforkuverð fyrir allan innanbæjarakstur er ca. þúsundkall á mánuði. Ég held nú að Orkuveitan megi hirða þann þúsundkall án þess að gefa afslátt.“
Flott er. Gaman væri að fá sundurliðaðan kostnað frá lærðum mönnum eins og þér um það hvað það kostar að reka rafmagnsbíla með öllu samanborið við bensínbíla.
Annars sé ég ekki að það sé mikið af „rangfærslum“ í grein minni. Nema kannski varðandi tolla og bílastæði (sem ég reyndar fullyrti ekki neitt um, kom bara með tillögur). Önnur atriði fjalla um ólíkar skoðanir okkar sýnist mér.
ég vil bara benda á http://www.nle.is ef þið hafið ekki skoðað þá síðu.
Auk þess er hægt að finna 2012 – nýtt upphaf og Northern Lights Energy á facebook.