Hljómsveitin Hraun er frábær


Ég og kærastan mín fórum á tónleika með hljómsveitinni Hraun í gærkvöldi. Tónleikarnir voru haldnir á Græna Hattinum (á Akureyri fyrir ykkur borgarbörnin). Af einhverjum ástæðum hafði ég aldrei heyrt um þetta band áður, en ég er sannfærður um að ég eigi eftir að heyra meira frá því í framtíðinni. Þessir tónleikar voru vægast sagt stórkostlegir. Svavar Knútur, söngvari sveitarinnar, söng eins og engill og tónlistinn í senn falleg, melankólísk og hressandi. Þó tónlistin hafi verið hádramatísk og tilfinningaþrungin á köflum (ég fékk tár í augun og gæsahúð) var stutt í hláturinn enda hljómsveitarmeðlimir afar fyndnir og skemmtilegir. Ég hvet alla til að kynna sér Hraun og nýja diskinn þeirra „I can’t believe it’s not happiness

Sjá nánar:
Vefsíða Hrauns

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:


3 athugasemdir

  1. Hraun eru einmitt alveg ægilega skemmtilegir, var leiðinlegt að komast ekki á þessa snilldartónleika.

  2. Frændi, hefur þú kynnt þér dönsku hljómsveitina Saybia? Þessi sveit kom fram á sjónvarsviðið eitthvað í kringum 2001 (plús mínus 1-2 ár) og varð bráðlega ein af vinsælustu sveitum Danmerkur. Hraun minna mig eilítið á þá.

    Tékkaðu á þessu: http://www.saybia.dk/index.php?id=27

  3. Hey Sigurður,
    takk kærlega fyrir góð orð.
    Þessir tónleikar voru mjög skemmtilegir og ótrúlega gaman að spila á þessum stað.
    Hlakka bara til að sjá þig aftur fljótlega.
    Bestu kveðjur,
    Svavar Knútur

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.