Jon Stewart næsti forseti BNA?


Síðustu daga hef ég mikið verið að horfa á The Daily Show með Jon Stewart. Fyrir þá sem ekki vita eru þetta pólitískir grínþættir þar sem fjallað er um alvarleg mál á afar skemmtilegan hátt. Stjórnandi þáttarins, Jon Stewart, er bæði fyndinn og eitursnjall. Fjölmargir frjálslyndir Bandaríkjamenn eru komnir á þá skoðun að Stewart ætti að bjóða sig fram í næstu forsetakosningum. Ég er ekki frá því að það sé góð hugmynd. Á heimasíðunni TayTV (ThrowAwayYourTV.com) eru taldar upp 10 góðar ástæður fyrir framboði Stewarts. Enjoy!


Tenglar:
Top Ten Reasons Jon Stewart could be President

The Daily Show

PetitionOnline.com

JonStewartForPresident.com

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:


2 athugasemdir

  1. TDS með Jon Stewart er algjör snilld!! Frábær þáttur. Ég er einmitt nýbúin að senda póst á RÚV og leggja til að þeir fari að sýna þessa þætti… stóra spurningin er hvort þeir hafi kjarkinn í það ;o)

    Svo er líka hægt að kaupa Stewart/Colbert ’08 boli á netinu (sjá t.d. http://www.misswit.net/stewart.html og http://www.cafepress.com/stewartcolbert)

  2. Loksins einhver sem að kann að meta (eða veit hvað) The Daily Show er!
    Hef verið mikill aðdáandi TDS síðustu ár og er einmitt að naga í handabökin á mér vegna öllum þeim snilldarþáttum sem að ég missi af daglega.
    Þetta er minn uppáhaldsþáttur, og ég ætla að senda e-mail á Rúv bara líka :D
    Þess má einnig geta að það er hægt að kaupa mjög skemmtilegt DVD box set á http://www.amazon.com sem að heitir „INdecision 2004″

    „IT’S A SERIES OF TUBES!“

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.