Hoppa í efni

Hvað ef Gunnar væri ráðherra?…

Sigurður Hólm Gunnarsson | 22.11.2004

Gunnar Þorsteinsson í Krossinum brosandi.

“[V]ið verðum að skilja eftir siðferðisvitund hjá barninu. [...] Hvernig ætlar þú að skila þeim ramma til barnanna ef þú hefur ekki kristin viðmið?”

Þetta sagði Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins, í umræðum um trúboð í skólum sem undirritaður tók þátt í á Bylgjunni fyrir skömmu. Aðeins nokkrum vikum áður skrifaði sami siðspekingur á vefsíðu sína að samkynhneigðir væru “hundar”, “mannhórur” og “kynvillingar.”

Hvað ef Gunnar væri menntamálaráðherra?...

Málflutningur Gunnars eru bestu rökin fyrir því af hverju það er algerlega nauðsynlegt að tryggja að ríkisreknir skólar séu hlutlausir þegar kemur að trúmálum. Skólar eiga að kenna staðreyndir, þekkingarfræði og mannlega samskiptahæfileika. Það á ekki að troða lífsgildum sumra ofan í kokið á öllum. Gott siðferði er eðlileg afleiðing aukinnar þekkingar og reynslu manna á því hvernig best sé að koma fram við náungann. Siðferði lærist ekki með því að læra gamlar goðsögur utanbókar. Kennum börnum að kenna sér sjálf, kennum þeim að leita sér þekkingar, kennum þeim að vega og meta upplýsingar. Þekking er forsenda siðferðis.

“En ef menn ætla að fara að skera niður kristnifræðslu í skólunum þá eru menn að saga greinina af sem þeir sitja á. Allt hið góða sem við eigum í íslensku þjóðlífi, íslenskri menningu, íslenskri sögu, íslenskri fortíð, nútíð og framtíð byggir á kristni.” - Gunnar Þorsteinsson

Annað hvort er Gunnar einstaklega fáfróður um sögu mannkyns eða hann er hreinlega að ljúga. Bókstafstrúarmenn hafa í sögulegu samhengi alltaf verið síðastir til að berjast gegn kynþáttahatri, þrælahaldi, kvenkúgun og öðru misrétti. Siðferði nútímamannsins er í engum tengslum við siðfræði Biblíunnar. Hvergi er hvatt til lýðræðis, frelsis, málfrelsis eða almennar menntunar í Biblíunni.

Gunnarar fortíðarinnar börðust gegn réttindum kvenna, gegn réttindum fólks af ólíkum kynþáttum og gegn frelsun þræla. Öll þessi siðlausa barátta var háð í nafni Guðs. Gunnarar nútímans láta sér nægja að berjast gegn réttindum samkynhneigðra:

“Ég ætla ekki að fara að útlista þann viðbjóð sem þetta fólk [samkynhneigðir] ástundar í kynlífi sínu, en í raun er það kjarninn sem þessi gleði [Gay Pride] snýst um. Þetta er ekki ástæði til gleði, öllu fremur ógleði.” - Gunnar Þorsteinsson

“Með þennan efnivið [Biblíuna] leggja menn síðan af stað og ætla að búa til sætsúpu sem á að ganga greiðlega niður í kokið á kynvillingunum.” - Gunnar Þorsteinsson

Hvað ef Gunnar væri félagsmálaráðherra?...

Ljóst er að Gunnar myndi aldrei sætta sig við að búa í landi þar sem “múslímskt siðferði” væri hluti af opinberri skólastefnu. Gunnari væri hollt að minnast orða Confúsíusar, sem var uppi meira en 500 árum fyrir krist, sem sagði að menn ættu aldrei að gera öðrum það sem þeir vildu ekki að aðrir gerðu sér.

"Við verðum að skilja eftir kristin viðmið. Annars búum við hér til barbarisma og anarkisma í landinu.” - Gunnar Þorsteinsson

“Dauðarefsins er boð sem Guð endurtekur í öllum fimm Mósebókunum, í Toranu og þetta er einnig skilningur Nýja Testamentisins.” - Gunnar Þorsteinsson

“Þegar Guð hefur talað er málið tæmt og endanlegt, sá einn sem er alvitur og óskeikull hefur sagt sitt álit. Guð gefur mannlegu réttarkerfi það vald í hendur að taka misgjörðamann af lífi." - Gunnar Þorsteinsson”

Hvað ef Gunnar væri dómsmálaráðherra?...

---

Verndum trúfrelsið. Aðskiljum ríki og kirkju.

Sjá nánar:
Trúboð í skólum – Reykjavík síðdegis (texti og upptökur)
Vefleiðarar Gunnars í Krossinum

Af Skoðun
Trúarbrögð og siðmenning
Siðferði, trú og trúleysi

Af vef Siðmenntar:
Trúfrelsisstefna Siðmenntar

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Sævar Helgi Bragason 22. nóvember 2004

    “Dauðarefsins er boð sem Guð endurtekur í öllum fimm Mósebókunum, í Toranu og þetta er einnig skilningur Nýja Testamentisins.” - Gunnar Þorsteinsson

    Er ekki allt líf heilagt í huga hans og í biblíunni? Samt fara skoðanabræður hans og drepa fólk í fátækum löndum. Þeir eru líka á móti fóstureyðingum. Skrítið.

  2. Hrafnkell Stefánsson 23. nóvember 2004

    Mikið rétt. Það stendur auðvitað ekki steinn yfir steini í Biblíunni enda vandfundin mótsagnakenndari bók. Afleiðing þessa er sú að fylgismenn hennar geta komist að nákvæmlega þeirri fyrirfram gefnu niðurstöðu sem þeir kjósa, hvort sem um er að ræða dauðarefsingar, fóstureyðingar, mannréttindi, innrásina í Írak og raunar hvað eina. Kristnir menn starfa enda í þúsundum trúfélaga og safnaða sem öll telja sig fylgja bókstafnum í einu og öllu en geta þó ekki starfað saman vegna innbirgðis deilna um túlkunina á þessum sama bókstaf!

    Það er undarlegt að þetta fólk skuli ekki velta því fyrir sér hvers vegna meint almáttug vera gat ekki skrifað ögn nákvæmari leiðbeiningapésa, sérstaklega í ljósi þess hversu mikilvægar þessar leiðbeiningar í augum verunnar og sporgöngufólki hennar eru taldar okkur mönnum.

    Á þessari vefsíðu er gott að leggja af stað í Biblíurannsóknir. Ekki er þar aðeins að finna yfirlit yfir þær þúsundir mótsagna sem þetta meinta orð guðs hefur að geyma, heldur má þar einnig nálgast yfirlit yfir ofbeldisverk, rangindi og mannréttindabrot sem þessi bók dásamar - og allt flokkað eftir efni!

  3. svava 22. mars 2006

    vá það yrði bara til góðs Gunnar tvíónar ekki við hlutina segir sýna skoðun opinskátt og er húmoristi.og það væru sko margir verri ráðherrar en hann .hjálpastarfið sem þau hjón hafa komið í framkvæmd í gegnum árin er ekkert lítil en við skulum nú ekki hafa hátt um það það er of gott til að tala um það.ég myndi vilja Gunnar sem ráðamann ekki spurning en hvað eru margir sem þora að skoða málin.ég veit það ekki en persónulega eigum við að teljast kristinn þjóð og hvað er kristni ég held að margir eru ekki búnir að kinna sér málin nógu vel heldur ákveða eitthvað upp á eigin spítur þá er ég ekki að tala um heilaþvott Gunnars heldur rök fyrir staðreyndum.áfran Gunnar þar að segja ef hann hefur áhuga .hann er frábær karakter skemmtilegur í fyrirlestrum góður ræðumaður hugsjónasamur og hefur þekkingu þannig ráðherra vil ég og ekki skemmir fyrir að mér finnst hann bráð skemmtilegur karakter.kv.svava

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Börn og menntun

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.