Mótmælum vondum lögum
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Ríkisumsvif
Viðbrögð: Ummæli (
Sama hvað mönnum finnst um samkeppnisreglur, Baug, Samkeppnisstofnun, fjölmiðlana, Jón Ásgeir, Ólaf Ragnar eða Davíð Oddsson þá held ég að flestum sé það ljóst í dag að fjölmiðlafrumvarpið er lagt fram fyrst og fremst til höfuðs ákveðnu fyrirtæki og ákveðnum mönnum. Forsætisráðherra hefur sýnt fram á það sjálfur með orðum sínum og aðgerðum aftur og aftur.
Ég tel reyndar eðlilegt að til séu sanngjarnar reglur um fjölmiðla til að tryggja lýðræðislega umræðu. Það breytir því ekki að umrætt frumvarp er slæmt.
Stuðningsmenn frumvarpsins hafa ekki getað leynt andúð sinni á ákveðnum fjölmiðlum og mönnum og virðist þessi andúð vera meginástæðan fyrir því að frumvarpið er sett fram. Það er að sjálfsögðu ótækt að lagafrumvörp séu sett fram undir þessum kringumstæðum.
Svokallaðir frjálshyggjumenn innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins hafa glatað öllum trúverðugleika sínum og morgunljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki kennt sig við einstaklingsframtak og atvinnufrelsi lengur.
Í ljósi þeirra aðstæðna sem frumvarpið er sett fram í og í ljósi þess að forsætisráðherra virðist stjórnast af persónulegri óvild sinni í garð ákveðinna manna held ég að það hljóti að vera skylda hvers manns að mótmæla gjörningnum. Við getum einfaldlega ekki leyft ráðamönnum að setja íþyngjandi lög bara af því þeir eru pirraðir.
Hver er þín skoðun?
5 athugasemdir
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Hvað er að því að lög beinist gegn einum aðila, þ.e.a.s. ef framferði hans er ámælisvert og talið þess eðlis að það skaði samfélagið? Er ekki nasistaflokkurinn bannaður í Þýskalandi? Eru slík lög ólög vegna þess að þau beinast gegn einum „aðila“?
Skora áfosetan að lata þjóðin seiga sina skóðun
skemmtilega viðeigandi fleyg orð sem byrtust hér í horni síðunnar þegar ég las þessa síðu.
einmitt eitthvað sem fleiri ættu að hugsa um núna þegar rískisstjórnin fer hamförum í löggjöf.
It is not the function of our government to keep the citizen from falling into error; it is the function of the citizen to keep the government from falling into error. – U. S. supreme courtjustice – [Robert H. Jackson, 1950]
Sko..að einhverju leiti skil ég þá sem styðja þetta frumvarp, en það er sett fram á kolröngum forsendum. Það hefði átt að vera komið fram fyrir löngu. En núna er þetta persónulegt strið Davíðs gegn Baugi. Dabbi vs. Baugur. Þetta er orðið skrípaleikur. Davíð mun hætta sem auli og það versta við það fyrir hann er að allir munu muna eftir honum sem slíkum. Því þetta voru hans seinustu verk. Ég held að hann sé bara að tapa sér.
Aðvitað eiga lög ekki að beinast að einum aðila, og fyndið það sem Diddon sagði með nasistaflokkinn í Þýskalandi. Þetta er einmitt mjög lík dæmi!!!!!! Go diddon.
En það er í lagi að lögin verða þannig að þau passi að dæmi eins og með baug gerist ekki aftur en það er ekki hægt að taka af mönnum það sem þeir eru búnir að kosta í mikla vinnu og fjármuni. Ég virði það sem Baugs menn eru búnir að gera fyrir landann í gegnum árin. Með komu bónus jókst kaupmáttur okkar litlu mannanna, þó svo ég viti að þeir sem eru hvað harðastir að koma á þessu frumvarpi hafa gengið inní garð bónus og labbað þaðan út klifjaðir. En um það er ekki verið að rífast heldur fjölmiðla frumvarpið. Davíð er fúll hve langt þeir hafa komist án hans hjálpar, hann er fúll að þeir kunni hugsanlega vera fylgendur samfylkingar, þó svo Jón sé búinn að segja að svo sé ekki endilega. En svo má ríkið reka sjónvarpsstöð útvarp og dagblað sem er svo hel blátt að það er fáránlegt. Ég er bara farin að vorkenna sjálfstæðismönnum, þeir eru eitthvað svo miklir kjánar. þora ekki að standa í hári konungi þeirra, nú ekki er kjölturakkinn hans Davíðs skrárri hann Halldór Á. Allir vilja verma stólinn góða sem Davíð nýtur að sitja í þessa seinust daga hans á þingi.
Ég verð að segja GO Steingrímur..þetta var snildar þruma hjá þér á þingi um daginn…það eru allir á einu máli með hana…og eitt veit ég, að það er að þú hefur aukið við þig fylgi.
Kannski, já, að Davíð sé fúll yfir því að þeir hafi komist þetta langt án hans hjálpar. Það sem ég held, hins vegar, að sé sennilegra, er að Davíð er með hagsmunahóp á bak við sig, stuðningsmannahóp sem nefnist Sjálfstæðisflokkurinn. Í tygjum við hann eru Kolkrabbinn (sem Baugur virðist hafa sporðrennt), heildsalaveldið (sem stórtapar á búðum eins og Bónus) og aðrir „grónir“ peningar. Með öðrum orðum, valdastétt Íslands finnst sér ógnað af Baugi. Finnst stöðu sinni ógnað. Nýar valdablokkir ryðja sér til rúms og gömlu valdablokkunum líkar það ekki, enda er slíkt óhjákvæmilega á kostnað þeirra.
Á meðan fá Björgólfsfeðgar að dafna undir verndarvæng sömu grónu valdablokkanna og er meðal annars gefinn Landsbankinn. Var það ekki banki sem við áttum, þjóðin? Hvernig var hægt að gefa sameign okkar fyrir symbólska upphæð? Hvernig gat ríkisstjórnin leyft sér það? Selja vinum sínum sameignina fyrir slikk?
Ef ég er spurður „með hvorum ég haldi“, þá er ég á móti báðum. Í þessu tiltekna máli er ég samt meira á móti Davíð og hans kónum, enda reiða þeir til höggs vopn sem þeir þykjast ætla að beita Baug, en lendir á okkur öllum. Réttast væri að rassskella þessa menn. Alla vega, þetta frumvarp er bara nýjasti hlekkur langrar keðju skammarstrika ríkisstjórnarinnar.