Þakka hlý orð…


Ég var að koma heim úr bíó. Kíkti á The Pianist með Binna félaga mínum á meðan þátturinn var sýndur í Sjónvarpinu. Frábær mynd sem sýnir vel hvernig mannveran getur breyst í villidýr undir réttum (eða kannski röngum) kringumstæðum. Á meðan fékk ég fjöldann allan af smáskilaboðum, tölvupósti og hringingum frá fólki sem vildi óskaði mér til hamingju með þáttinn. Ég vil þakka ykkur kærlega fyrir hlý orð! Þau eru mér mikils virði.

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:


3 athugasemdir

  1. Sjónvarpsþátturinn á RÚV í gærkveldi var hrikalegur, vittnisburður fórnarlamba eineltis tók í hjartað. Hvar eru gerendurnir eiginlega ??? Ekki senda þeir frá sér afsökunnarbeiðni til þeirra sem þeir píndu.

    Fór svo á heimasíðu kennarasambands Íslands og sló inn leitarorðið „einelti“ í veAMaus KÍ.
    Svarið sem ég fékk var þetta:

    Leitarniðurstaða
    Engar síður fundust miðað við gefin leitarskilyrði.
    Hvað segir þetta mér og þér og öllum þeim sem orðið hafa fyrir einelti í skólum landsins… síðustu árin ?

  2. Þetta sem Bjarni Dagur segir frá er alveg skelfilegt.

    En Siggi ég vil endilega hrósa þér. Þetta var alveg frábær þáttur. Fór fram yfir væntingar mínar.

    En rosalega var erfitt að horfa á þetta.

  3. Þú stóðst þig líka frábærlega vel Ingvar Árni. Mér finnst líka mjög erfitt að horfa á þáttinn. Reyndar skrapp ég í bíó á meðan þátturinn var sýndur. Gat ekki hugsað mér að horfa á hann. Svona er maður aumur :(
    Við vonum bara að þetta geri eitthvað gagn!

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.