Hoppa í efni

Um Nei ráðherra

Sigurður Hólm Gunnarsson | 03.03.2004

Merki Útvarps Sögu.Nei ráðherra er útvarpsþáttur þar sem fjallað er um þjóðfélagsmál út frá hugsjónum og ekki síður hugmyndafræði. Rætt verður við áhugaverða einstaklinga sem hafa sterkar skoðanir á þjóðfélagsmálum og þeir spurðir um hugmyndafræði sína og baráttumál.

Þátturinn er á Útvarpi sögu alla föstudaga milli klukkan 17 og 18. Stjórnendur þáttarins eru Sigurður Hólm Gunnarsson, Haukur Örn Birgisson og Hinrik Már Ásgeirsson.


Upptökur af þættinum verða reglulega birtar á skodun.is/nei-radherra auk þess sem þar verður að finna umfjöllun um ýmislegt sem tengist þættinum.

Áhugasamir geta sent stjórnendum þáttarins spurningar og/eða tillögur á netfangið nei_radherra@skodun.is.

Um stjórnendur þáttarins:
Haukur Örn Birgisson er lögfræðinemi á lokaári. Hefur hann tekið þátt af miklum krafti í stjórnmálum sem fyrrverandi ritstjóri Frelsi.is og varaformaður Heimdalls. Haukur er núverandi formaður Frjálshyggjufélagsins og heldur úti vef sínum www.haukurorn.com.

Sigurður Hólm Gunnarsson er sjálfstætt starfandi blaðamaður og ritstýrir vefritinu www.skodun.is.

Hinrik Már Ásgeirsson er tölvunarfræðinemi á lokaári. Hann er formaður Ungra jafnaðarmanna í Kópavogi og hefur skrifað tugi greina á vefritið www.politik.is.

Úvarp saga – FM 99,4

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Nei ráðherra

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.