Hoppa í efni

Skoðun – nýtt vefrit um þjóðfélagsmál

Sigurður Hólm Gunnarsson | 23.06.1999

Á þessum vefsíðum munu höfundar leitast við að tjá skoðanir sínar hinum ýmsu málefnum á hreinskilinn og opinskáan máta. Almenn umræða um málefni líðandi stundar hefur að mati höfunda átt það til að einkennast ýmist af daufri og hugmyndasnauðri kyrrstöðupólitík eða hrópandi trúarjátningum öfgahópa, hvort sem þeir telja sig til vinstri eða hægri (eða jafnvel miðju). Hér verður gerð tilraun til þess að fjalla um hin ýmsu málefni á opinn en jafnframt rökstuddan máta. Hvort þessi tilraun tekst eða ekki er, að sjálfsögðu, þitt - lesandi góður - að meta.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Persónulegt og daglegt líf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.