Hoppa í efni

Fyrsta greinin mín 🙂

Sigurður Hólm Gunnarsson | 26.06.2003

Bókastafli með opinni bók efst.Ég var að skoða greinasafn Morgunblaðsins í gær og rakst þar á eldgamla grein eftir mig og Brynjólf Þór félaga minn. Greinin er skrifuð 1996 og líklegast fyrsta greinin sem ég á sem send er til birtingar í dagblaði. Greinin fjallar um kennsluhætti og kröfu um betri kennslu í skólum landsins.

Við Binni, og nokkrir aðrir, fengum okkur fullsadda á því að þó nokkrir kennarar sem störfuðu við skólann okkar voru óhæfir, eða í það minnsta illa undirbúnir. Margir höfðu ekki fyrir því að búa til glósur eða önnur hjálpargögn og aðrir kunnu einfaldlega ekki að koma fram.

Nemendur við skólann höfðu margsinnis kvartað undan sumum þessara kennara en aldrei gerðist neitt. Athugasemdir nemenda virtust sjaldnast skipta máli.

Við stofnuðum því félag sem við kölluðum því frumlega nafni ,,Samtök áhugafólks um bætta kennslu“ eða SÁBK. Fyrsta verkefni okkar var að safna undirskriftum þar sem við kröfðumst þess að nemendur fengju rétt til þess að meta kennara sína við lok hverrar annar og síðan yrði matsnefnd, með fulltrúum frá skólastjórn og nemendum, látin fara yfir niðurstöður matsins. Við töldum að ef ákveðnir kennarar fengju aftur og aftur slæma umsögn nemenda þá yrðu stjórnendur skólans að gera eitthvað í málunum. Við söfnuðum nokkur hundruð undirskriftum á einum degi.

Ákveðið var að skrifa grein í Morgunblaðið til að vekja fólk til umhugsunar. Þar sem þetta er líklegast fyrsta greinin mín (með aðstoð Binna þó) finnst mér svolítið sniðugt að birta hana hér.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Börn og menntun

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.