Ef Demókratar ætla að nýta kosningasigur sinn til góðra verka væri ágætis fyrsta skref að skipta um forystu. Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, og Hakeem Jeffries, leiðtogi Demókrata í fulltrúadeildinni, eru að mínu mati alls ekki réttu mennirnir til að leiða þær breytingar sem nú þarf.
Ég hef enga trú á þessum miðjumoðurum. Stuðningur þeirra við Ísrael er mun skýrari en viljinn til að takast á við það óréttlæti sem almenningur í Bandaríkjunum býr við. Hvar er krafturinn í baráttunni fyrir heilbrigðisþjónustu fyrir alla? Gegn sívaxandi samþjöppun auðs og valda? Hvar er baráttan fyrir mannréttindum og skýr fordæming á stríðinu og þjóðarmorðinu á Gaza?
Báðir hafa þegið kosningaframlög frá eða í gegnum AIPAC, áhrifamikil hagsmunasamtök sem beita sér fyrir stuðningi Bandaríkjanna við Ísrael, auk annarra pólitískra fjáröflunarnefnda sem vinna að sömu markmiðum. Ég sé ekki hjá þeim þann vilja sem þarf til að draga úr áhrifum einkafjármagns auðvaldsins í stjórnmálum. Hversu trúverðug verður baráttan gegn sérhagsmunum þegar forystan er sjálf á spenanum hjá auðvaldinu?
Vandinn við Demókrataflokkinn hefur lengi verið sá að almenningi er boðið að sætta sig við óbreytt ástand af því að Repúblikanar séu verri. Það er auðvitað töluvert til í því síðara. En fólk þarf líka að hafa eitthvað að kjósa með. Von um betra líf, meira öryggi og sanngjarnara samfélag.
Þess vegna hef ég verið spenntur fyrir fólki eins og Abdul El-Sayed og auðvitað Bernie Sanders. Þar sé ég skýrari vilja til breytinga og baráttu fyrir því sem skiptir fólk máli. Demókratar þurfa meira af slíku fólki og minna af endalausum útreikningum um hvernig megi styggja sem fæsta auðmenn og styrktaraðila.
Ég fagna því að Trump og Repúblikanar hafi stórtapað. En sigur Demókrata verður heldur lítils virði ef forystan ætlar að eyða næstu tveimur árum í að útskýra hvers vegna ekkert sé hægt að gera.
Það er gagnslaust að komast til valda ef valdinu er ekki beitt til góðra verka.
Slagorð Abduls draga ágætlega saman það sem þarf:
„Peningana úr pólitíkinni. Meira í vasann hjá almenningi. Heilbrigðisþjónustu fyrir alla.“ (Money out of politics. Money in your pocket. Medicare for All.)



