Ég ákvað að setja Skoðun í nýjan búning. Það var bæði kominn tími á tæknilega uppfærslu og nýtt útlit. Síðan hafði fengið litla athygli lengi, enda virðast bloggsíður og vefrit ekki vera jafn mikið í tísku og áður. Hugleiðingar fólks birtast nú gjarnan á samfélagsmiðlum eins og Facebook.
Miðaldra manninum mér finnst það dálítið leitt.
Það er eitthvað sem truflar mig við að skrif mín séu föst á samfélagsmiðlum sem ég á í raun ekki. Þótt ég skrifi þar og taki þátt í umræðum finnst mér gott að eiga minn eigin stað fyrir textana. Stað þar sem ég get safnað þeim saman og gengið að þeim aftur.
Ég ætla því að birta hér á Skoðun valið efni sem ég set frá mér á samfélagsmiðlum. Ég veit svo sem ekki fyrir hvern þetta er gert, annan en mig sjálfan. Kannski er það alveg næg ástæða.
Ef þið hafið áhuga eruð þið velkomin að kíkja á Skoðun. Síðan hefur verið starfrækt frá 1999, eða í 27 ár!
Það er því kannski ekkert skrýtið að hún hafi þurft smá andlitslyftingu.
Sjá: https://skodun.is
