Einn þýskukennari minn í framhaldsskóla sagði bekknum góða frægðarsögu af sjálfum sér sem ég man enn. Kennarinn hafði nefnilega einu sinni leikið sem aukaleikari í atriði í kvikmynd með bróðir leikarans sem lék Harry Klein, aðstoðarmann Derrick, í samnefndum þáttum. Atriðið var klippt út. Góð saga samt.
Efnisorð: Persónulegt og daglegt líf
