Hoppa í efni

Ég er reiður!

Sigurður Hólm Gunnarsson | 12.11.2014

Stjórnmálamenn keppast við að segja að „leiðréttingin“ stóra sé leið yfirvalda til að bæta fólki skaðann af hruninu. Þeir tala allir um „sanngirni“ og „forsendubrest“. Ég verð agalega reiður þegar ég heyri þetta.

Fátækt fólk sem á ekki og mun líklegast aldrei geta eignast húsnæði fær ekki neitt. Þetta fólk hefur orðið fyrir kaupmáttarrýrnun. Heilbrigðiskostnaður hefur hækkað, matarskattur hefur hækkað, krónan féll, sumir misstu vinnu, aðrir yfirvinnu. Aðrir misstu heilsuna út af álagi. Námslán hafa hækkað og svona má lengi telja.

Sömu stjórnmálamenn og tala um sanngirni tala ekkert um lágtekjufólk, eða bara venjulegt fólk á leigumarkaði, öryrkja og aðra þá sem treysta mest á heilbrigðisþjónustuna og velferðarkerfið. Nei þetta fólk má éta það sem úti frýs. Það fær enga aðstoð en þarf að taka öllum verstu afleiðingum hrunsins. Það á nefnilega að spara þjóðina úr hörmungunum. Það á að skera niður.

Það á ekki að bæta heilbrigðiskerfið, það er of dýrt. Það á ekki að efla menntakerfið, við erum að spara. Það á að draga úr almannaþjónustu því hér varð HRUN!

…en auðvitað höfum við sem samfélag efni á að „leiðrétta“ húsnæðisskuldir allra fyrir tugi milljarða, óháð stöðu skuldara að öðru leyti.

Er enginn annar en ég reiður?

Skoða 26 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Sigurður Haraldsson 12. nóvember 2014 · á Facebook

    Ég er mjög sár og svekktur að samlandar mínir hafi látið plata sig eina feriðna enn og kosið vöndinn! Nú er svo komið að flestir ættu að sjá að þessi vöndur er ekki að gera neitt fyrir okkur almenning í landinu og um leið að sjá að eina leiðin út úr vandanum er að hefja hér nýtt upphaf án aðkomu flokkræðis!

  2. Jón Baldursson 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Jú ég.

  3. Kolbeinn Agnarsson 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Jú ég er fjúkandi illur.

  4. Robert Elvarsson 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Ég er brjálaður !

  5. Gudmundur Asgeirsson 13. nóvember 2014 · á Facebook

    brjál

  6. Guðrún Halla Jónsdóttir 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Jú ég!

  7. Ólafur Guðmundsson 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Ég er enn reiðari!

  8. Magðalena S. Kristinsdóttir 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Ég er hoppandi reið!

  9. Jóhannes Pétursson 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Èg er meira svona brjálaður!

  10. Ágústa Dröfn 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Margir brjálaðir, ég er líka brjáluð. 'Eg á ekki húsnæði, ég leigi, ég er 75% öryrki, kemst ekkert nema á mínum hjólastól ! Við þurfum leiðréttingu á okkar ömurlegu tekjum, Hvað í andskotanum þarf að gerast svo að þessir "Stjórmálamenn " gerði eitthvað fyrir þennan hóp ? Finnst þeim bara sjálfsagt að þessi hópur hafi það svona ömurlegt ? Ekki myndi þýða að óska þeim að verða öryrkjar, þar sem þeir myndu aldrei fá þau lúsarlaun sem ég fæ ! 'Eg sendi póst á útvarpsstöð á ákveðin aðila, þar sem ég óskaði eftir umræðu um bág kjör öryrkja. Var ekki virt viðlits ! Umræða "leiðréttingu hún þótti nógu fín , svo hún ómaði dag eftir dag .Eitt er alveg á hreinu, ég veit ekki um neinn sem myndi vilja vera í mínum sporum !

  11. Eygló Guðmundsdóttir 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Jú, algjörlega!

  12. Baldur Ragnarsson 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Jú!

  13. Heiða E. Hafdísardóttir 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Þessi reiði sem ég fyllist er svo erfið því um leið er svo erfitt að finna leið út úr henni. Ráðamenn hafa engan áhuga á að lagfæra neitt sem snýr að þeim sem minna hafa og þeir sem ekkert eiga mega þeirra vegna éta það sem úti frýs þeirra vegna.

  14. Elva Dögg Blumenstein 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Ég er brjáluð!

  15. Sigurbjörg Inga Magnúsdóttir 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Jú ég þoli ekki þetta ástand.

  16. Halla Guðjónsdóttir 13. nóvember 2014 · á Facebook

    jú ég líka

  17. Jóhannes R Guðnason 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Jú ég er reiður......................................................

  18. Jóhannes R Guðnason 13. nóvember 2014 · á Facebook

    ?????? Spurning. Hvernig ætlar Rikisstjórinn að bætta öllu því fólki sem mistti syn ybuð eða húsið. 'A það einhver rétt ??????

  19. Þóra Kristinsdóttir 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Reiði hjálpar ekki neinum.

  20. Gróa Hafdís Schram Ágústsdóttir 13. nóvember 2014 · á Facebook

    ÉG!

  21. Eygló Pétursdóttir 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Getur einhver hér sagt mér eitt.. Bankaskatturinn sem var hækkaður og átti svo að leggja líka á fjármálafyrirtæki í slitameðferð..Þeir segja þennan gjörning vera fjármagnaðann með því... eru Glitnir og Kaupþing gamli byrjaðir að greiða hann.. nú veit ég að allavega Glitnir er ekki sáttur við að greiða þetta og ætluðu að fara dómstólaleiðina og trúlega Kaupþing líka.. eru þessir bankar að greiða þennan skatt þó ekki sé búið að dæma í því??

  22. Svandís Guðmundsdóttir 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Ó jú !!!
    Engin er leiðréttingin til handa venjulegum launþega(láglaunþega) sem þarf að mæta öllum hækkunum á öllum sviðum. Húsnæði, hiti og rafmagn, matur, heilbrigðisþjónusta . . bara þetta grunn stöff. . . . og ég sem var meira að segja tilbúin til þess að éta slátur í alla mata eftir hrun til að taka á mig minn skerf . . . svo sér maður aðferðafræðina hjá stjórnvöldum nú . . . og jú ég er REIÐ !

  23. Sveinn Arngrímsson 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Ég er nú skoðanabróðir þinn að mörgu leiti, en þarna er ég gersamlega ósammála þér. Þetta snýst ekki um að tína til hópa hér og þar sem sannarlega mættu hafa það betra. Þetta snýst um risa stóran hóp venjulegs fólks sem varð mjög illa úti fái ekki bara sanngjarna leiðrétingu, heldur er þetta er stór almenn aðgerð sem hefur mikil áhrif í heildina litið fyrir þjóðina, frekar en smáplástra aðgerð, sem lagar að einhverju leiti hluta fólks, en skilur massann eftir í skítnum. Það þarf að horfa á stóru myndina, og hún er sú að þjóðfélagið í heild sinni þarf að vera í sæmilega heilbrigðu fjárhagslegu ástandi, til að getað myndað fjárhagslegt svigrum svo að það verið aflögufært gagnvart minni hópun sem hafa það mun ver. Það er forgangsröðun sem skiptir máli til lengri tíma.

  24. Ólafur H. Ólafsson 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Þessar aðgerðir eru ekki að hjálpa því fólki sem þarf svo sannarlega á mestri hjálp að halda, enda er þessi ríkisstjórn ekki að vinna fyrir það fólk. Hún tekur fé úr þeim vösum sem svo sannarlega á að hlífa og í raun ætti að bæta í, en snertir helst ekki þá vasa sem eru hvað troðnastir og ætti svo sannarlega að taka úr. Já, ég er reiður!

  25. Ólafur Als 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Stjórnarherrarnir tala um að bæta "forsendubrest" verðtryggðra húsnæðisbréfa - ekki annað. Upplag höfundar er því rangt = lygi. Stjórnvöld nú hafa og sett nokkuð í að hækka bætur og til ýmissa þátta heilbrigðiskerfisins. Sveitarfélögin hafa þó setið aðeins eftir en þau hafa á sinni könnu að hlú að t.d. útigangsfólki og fátækum. Ljóst er að flestir vilja gera betur. Ég er á meðal þeirra sem trúi því að það verði best gert með ábyrgri stjórnun á almannafé. Hins vegar tek ég undir að fleiri mættu ræða hag hinna verst settu, þ.e. þeirra sem eru á lægstu töxtum. Verkalýðshreyfingin er máttlaus, nema þegar kemur að því að vernda sína digru sjóði og umræðan, svo dæmi sé tekið, snýst um að hækka laun lækna, úr ríkissjóði, en laun tónlistarkennara kemur fáum við - e.t.v. vegna þess að þau eru sótt aðallega úr sjóðum borgarsjóðs. Ætli kassadaman eða uppskipunarkallinn geti ekki sótt sér vinnu út fyrir landsteinana?

  26. Jörundur Þórðarson 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Það urðu allir fyrir kaupmáttarrýrnun. Skuldarar urðu samt fyrir meiri skaða. Á meðan laun stóðu í stað hækkaði skuldin stórlega. Aðeins einu sinni áður gerðist svipað (Þjóðarsáttin, kringum 1985) sjálfur lenti ég í talsverðum þrengingum þá en tókst að standa í skilum. Það er ekki enn búið að hækka matarskatt, vonandi tekst að stoppa það.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Efnahagur og atvinnulíf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.