Hoppa í efni

Byltum skólaumhverfi sem hvetur til eineltis

Sigurður Hólm Gunnarsson | 26.08.2013

Einelti í grunnskólum er viðvarandi vandamál þó vitundarvakning hafi vissulega orðið á undanförnum árum. Flestir eru orðnir meðvitaðir um að einelti er ofbeldi sem verður að taka alvarlega og koma í veg fyrir. Flestir skólar eru með eineltisáætlanir og foreldrar, kennarar og aðrir starfsmenn skóla eru í flestum tilvikum duglegir að  fylgjast með hvernig börnum líður í skólanum og grípa inn í eftir þörfum.

Ég tel þó að mun meira þurfi að gerast til að hægt sé að draga enn frekar úr einelti og jafnvel útrýma því alveg. Lausnin felst ekki í fyrirlestrum, átaksverkefnum og eineltisáætlunum. Lausnin hefst með byltingu í skólakerfinu.

Skólaumhverfið sjálft hefur nefnilega töluverð áhrif á að einelti nær að þrífast á skólalóðinni.

Bylting í fimm skrefum...

1. Endurskilgreina þarf markmið grunnskólans
Höfuðáhersla ætti að vera lögð á að börnum líði vel í skólanum. Námsárangur á að vera í öðru sæti. Vellíðan barna er mikilvægari en einkunnir þeirra. Einkunnir eru ekkert nema tölur á blaði á meðan líðan fjallar um lífið sjálft. Ef börnum líður vel í skóla er námsárangurinn skammt undan en góður námsárangur er engin trygging fyrir vellíðan.

2. Leggjum niður frímínútur
Einelti og annað ofbeldi á sér stað í 50% til 75% tilfella í frímínútum. Enda ekki undarlegt þar sem þá mætast tugir eða hundruð barna á ólíkum aldri til að fá útrás. Börn sem eru í raun að taka sín fyrstu skref í mannlegum samskiptum. Nær væri að bjóða börnum upp á hreyfingu og afslöppun undir leiðsögn starfsmanna skólans. Hefðbundnar frímínútur eru beinlínis stórhættulegar og ætti því að leggja þær niður hið snarasta.

3. Kennum heimspeki í skólum
Sérstök og mikil áhersla ætti að vera lögð á að þjálfa börn í heimspekilegri hugsun og hegðun í skólum. Hér á ég við skipulagða þjálfun í tjáningu, framkomu, siðfræði og rökfræði. Slík þjálfun dregur ekki bara úr líkum á einelti heldur er hún gríðarlega mikilvægur undirbúningur fyrir lífið sjálft. Góð menntun snýst ekki um að læra misgagnlegar staðreyndir utanbókar heldur um hvernig hægt er að verða sér út um þekkingu, vega hana og meta og ekki síst hvernig er best er að eiga í góðum og gagnlegum samskiptum við annað fólk.

4. Burt með heimalærdóminn
Þó heimalærdómur hafi ef til vill ekki bein áhrif á einelti þá getur óþarfa heimalærdómur haft áhrif á líðan barna og þar með hegðun þeirra. Eins og ég hef fjallað um áður þá benda rannsóknir til þess að heimalærdómur skili litlum sem engum árangri hjá grunnskólabörnum og því er hann beinlínis óþarfur og jafnvel skaðlegur.

5. Jákvæður agi er nauðsynlegur
Í öllum skólum eiga að vera skýrar reglur, bæði fyrir nemendur og starfsmenn, sem farið er eftir. Öll börn þurfa skýrar reglur og aga. Hér á ég ekki við heraga heldur sameiginlegan skilning skólafólks á því að jákvætt sé að koma fram við náunga sinn af virðingu. Erfitt getur verið að halda uppi jákvæðum aga og því nauðsynlegt að starfsmenn skóla fái nægjanlega góða þjálfun í mannlegum samskiptum. Nú veit ég ekki hvernig þjálfun kennara er háttað í dag en í gegnum tíðina hafa kennarar reglulega sagt mér að í sínu námi hafi þeir fengið litla þjálfun í því hvernig á að koma fram við börn. Góður kennari er ekki aðeins góður í námsfögunum sjálfum. Góður kennari þarf líka að vera góður leiðtogi og fyrirmynd, jafnvel svolítill leikari í sér. Það er ákveðin sviðslist að kenna.

Byltum skólanum
Eflaust líta margir á þetta greinarkorn sem gagnrýni á skólastarf og jafnvel á kennara. Það er vissulega rétt en aðeins ef orðið gagnrýni er skilið rétt. Íslenska hugtakið gagnrýni er, ólíkt því sem margir halda, afar jákvætt hugtak.  Það er jákvætt að rýna til gagns.

Ég er einfaldlega sannfærður um að með þeim breytingum sem ég hef lýst hér væri hægt að gera gott skólakerfi enn betra. Að sama skapi er ég viss um að ef farið sé eftir þessum tillögum væri hægt að nánast útrýma einelti og öðru ofbeldi á skólatíma.

Það er því til mikils að vinna.

Vísanir:

Tengdar greinar:

Skoða 9 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Sveinbjörn Hjörleifsson 26. ágúst 2013 · á Facebook

    Mig langar að þakka þér kærlega fyrir þessa grein. Ég var persónulega lagður í 5 ára stanslaust einelti og ber þess enn ör. Því fylgist ég vel með þessum málum. Mér fannst sérstaklega áhugavert þetta sem þú nefnir um frímínútur og var sjálfur ekki búinn að velta því fyrir mér. Ég er algjörlega sammála þér um að heimalærdómur er afar ofmetið fyrirbæri og það er bráðnauðsynlegt að kenna heimspeki í skólum.
    Sjálfur er ég meðlimur í Sólskinsbörnum, sem er facebook-vefur gegn einelti. Þar er oft birt ýmislegt athyglisvert.

  2. Margret Barnett Sig 26. ágúst 2013 · á Facebook

    Er ekki að skilja þessa umræðu hér er heimalærdómur undirrót eineltis?
    Er afar fylgjandi heimavinnu að einhverju marki. Hjá ungum börnum er alger forsenda lesskilnings og lesturs að lesa og þá æfingu fá nemendur varla á hverjum degi í skólanum sínum þegar bekkjadeildir telja yfir 20nem. Ég er sjálf grunnskólakennari og móðir 4 barna sem búin eru ,eð skólagöngu . Aldrei var ég vör við að þessi svokallaða heimavinna sem fólst kannski í því að lesa og reikna eina bls væri íþyngjandi fyrir mig sem foreldri. Held að viðhorf fólks til skólans skipti öllu máli þegar kemur síðan að vinnugleði nemenda.Get ekki séð að þetta svokallaða frjálsræði hafi endilega fært okkur tóma gæfu

  3. Hrafnhildur Guðjónsdóttir 26. ágúst 2013 · á Facebook

    http://beggi3.wordpress.com/
    Siggi kíktu á þetta 😉

  4. Svanur Sigurbjörnsson 26. ágúst 2013 · á Facebook

    Ég held að bæturnar felist mikið í því að börnin séu ekki eftirlitslaus hvort sem það er í tímum eða frímínútum og að kennarar læri að þekkja hættumerki eineltis og hafi við því ákveðin mótsvör eða úrræði. Einelti þar að stoppa í fæðingu, annars blómstrar það. Andfélagsleg hegðun (svívirðileg framkoma gagnvart öðrum) getur birst snemma á lífsleiðinni og það er ekki víst að hægt sé að breyta viðkomandi. Hins vegar er hægt að halda aftur af brotum og vernda aðra. Fyrir barn sem verður fyrir árás (bullying) er afar mikilvægt að vita af því að starfsfólk skólans er er reiðubúið til að taka strax á málum og að það viti að á það verður hlustað. Brjótendur þarf að taka í ferli þar sem þeim er gert ljóst að hegðunin verður ekki liðin og hún hafi afleiðingar. Það ferli þarf að innifala foreldra viðkomandi og má ekki slá slöku við í því. Það þarf þjálfun, hugrekki og áhuga og stuðning kerfisins til að svona gangi upp. Umfram allt þarf að skoða þetta sem flókin mál sem sífellt þarf að vinna í.

  5. Auður Sturludóttir 26. ágúst 2013 · á Facebook

    Er þetta ekki (sem betur fer) að þróast í þessa áttina í grunnskólum landsins? Alla vega í Vesturbæjarskóla, nema það eru enn einhverjar frímínútur.

  6. Hope Knútsson 26. ágúst 2013 · á Facebook

    Frábær grein! Reminds me of the research I did in 1984 about violence in the schools and went around giving a lecture about it over the next 4 years.

  7. Arnaldur Sigurðarson 26. ágúst 2013 · á Facebook

    Ég styð þessar tillögur heilshugar og vill nýta tækifærið og bjóða þér í Facebook hóp IMER eða Icelandic Modern Education Reform. Þar er verið að vinna að því að gera tillögurnar í þessum pistli að lagalegum raunveruleika.

  8. Jensína Edda Hermannsdóttir 26. ágúst 2013 · á Facebook

    langar að benda þér á Hjallastefnuna sem er íslensk skólastefna Margrétar Pálu og hefur þróað grunnskólastig í mörg ár og í einum af grunnskólanum mældist ekki einelti i nýlegri könnun (kom i fréttum) . Það er bylting

  9. Helga Völundar Draumland 26. ágúst 2013 · á Facebook

    Frábærar tillögur.
    Það eina sem gæti stöðvað þetta væri leti.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Einelti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.