Mikilvægt er að fólk lesi sér til um hagfræði og ólíkar hagfræðistefnur. Öðruvísi er erfitt að vera með upplýstar skoðanir um ástand heimsmála. Án grunnþekkingar á hagfræði er varla hægt að mynda sér pólitíska skoðun. Hagfræði er ekki eins flókin og margir halda. Ótrúlegt en satt getur meira að segja verið skemmtilegt að lesa um hagfræðikenningar. Ég lofa! Hér fyrir neðan bendi ég á nokkrar bækur.
Hér má finna áhugavert viðtal við hagfræðinginn Steve Keen frá því í nóvember 2011. Nýlega las ég bók hans Debunking Economics - Revised and Expanded Edition: The Naked Emperor Dethroned? Eins og titillinn gefur til kynna gagnrýnir Keen hagfræði sem fræðigrein harðlega, þá sérstaklega nýklassíska hagfræði (neoclassical economics) sem hvað mest er dýrkuð um heiminn. Ég mæli með þessari bók. Mér fannst reyndar svolítið erfitt að lesa hana þar sem hún er ekki beinlínis skrifuð fyrir leikmenn og töluvert er um leiðinda fagmál (jargon).
Ef Keen hefur rétt fyrir sér er hagfræði eins og hún er kennd víðs vegar um heiminn hálfgert, ef ekki algert, kjaftæði.
Keen hefur gagnrýnt Krugman nokkuð en mér sýnist samt að þeir séu sammála um margt. Báðir tala gegn ójöfnuði, regluleysi í bankageiranum og fyrir skuldaleiðréttingu.
Aðrar áhugaverðar (og auðlesanlegri) bækur um hagfræði og efnahagsmál sem ég mæli eindregið með. Þær eru bæði upplýsandi og skemmtilegar:
23 Things They Don't Tell You About Capitalism Chang eftir Ha-Joon.
The Price of Inequality: How Today's Divided Society Endangers Our Future eftir Joseph E. Stiglitz.
Beyond Outrage: Expanded Edition: What has gone wrong with our economy and our democracy, and how to fix it eftir Robert B. Reich.
End This Depression Now! eftir Paul Krugman.
Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
Ótrúlegt en satt getur meira að segja verið skemmtilegt að lesa um hagfræðikenningar. Ég lofa! Hér fyrir neðan bendi ég á nokkrar bækur.
Ég byrjaði á því að lesa Capitalism, Socialism and Democracy eftir Schumpeter. Eftir það gat ég ekki hætt og las í kjölfarið The Theory of Money and Credit og Human Action eftir Mises(Austurríski skólinn), Money Mischief eftir Friedman(frjálshyggja), Politial Economy eftir John Eaton(Marxisti) og The General Theory eftir Keynes(stjórnlynd hagfræði). Þetta eru allt bækur sem ég mæli með til að auka víðsýni og þekkingu á hagfræði og til að skilja betur fólk sem aðhyllist þessar ólíku kenningar. Mises fjallar um hagfræði út frá fólki og tíma en ekki peningum og það opnaði fyrir mér alveg nýjan heim. Það er ekki græðgi sem fær fólk til að stunda viðskipti heldur sjálfsbjargarviðleitni.
Globalization and it's discontents er líka mjög góð bók, þó hún sé komin svolítið til ára sinna.
23 atriði er líka ágætis lesning, þó ég hafi ekki beinlínis séð margt nýtt í henni. Meira og minna hafði efni hennar verið kennt sem anecdótur í hagfræðinni.



