Hoppa í efni

Krefjumst gjaldfrjálsrar heilbrigðisþjónustu

Sigurður Hólm Gunnarsson | 24.09.2017

Jafnaðarmenn vilja að öll nauðsynleg heilbrigðisþjónusta sé gjaldfrjáls með öllu. Sjúklingar eiga ekki að þurfa að taka upp veskið þegar þeir fara til læknis eða leysa út nauðsynleg lyf. Nauðsynleg tannlæknaþjónusta og sálfræðiþjónusta á að sjálfsögðu einnig að vera gjaldfrjáls. Það er réttur okkar að hafa greiðan aðgang að viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

Stjórnmálamenn sem berjast gegn þeim sjálfsögðu mannréttindum um gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu skilja annað hvort ekki að margir samlandar þeirra hafa ekki efni á viðeigandi þjónustu eða þessum stjórnmálamönnum skortir einfaldlega samkennd.

Þegar nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu eins og sálfræðiþjónustu er haldið fyrir utan samtryggingarkerfið er það ekkert annað en skattur á fátækt fólk.

Ég þekki kostnaðinn sem til fellur vegna geðheilbrigðisþjónustu of vel sjálfur. Kostnaðurinn er gríðarlegur, stundum hátt í 100 þúsund á mánuði. Sem betur fer er ég með ágætar tekjur og á skilningsríka fjölskyldu. Þannig er það ekki hjá öllum.

Tugir Íslendinga falla fyrir eigin hendi á hverju ári, margfalt fleiri en látast í umferðarslysum svo dæmi sé tekið. Í ljósi þess er það þjóðarskömm að geðheilbrigðisþjónusta sé ekki aðgengileg og gjaldfrjáls.

Það þarf að stórbæta heilbrigðiskerfið og það kostar fjármagn. Ég sem jafnaðarmaður vil finna það fjármagn, jafnvel þó það kalli á skattahækkanir. Við eigum að vera stolt af því að taka höndum saman og byggja upp besta og aðgengilegasta heilbrigðiskerfi í heimi.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.