Hoppa í efni

Geðsjúkt heilbrigðiskerfi

Sigurður Hólm Gunnarsson | 10.09.2014

Í dag, 10. september, er alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna.

Af því tilefni vil ég biðja ykkur að velta eftirfarandi staðreyndum fyrir ykkur:

  • Árlega eru rúmlega hundrað einstaklingar lagðir inn á sjúkrahús vegna sjálfskaða.
  • Um 30 til 40 einstaklingar svipta sig lífi á hverju ári (4-5 sinnum fleiri en deyja i umferðarslysum).
  • Þunglyndi og kvíði eru helstu orsakir sjálfsvíga.
  • Alvarlegt þunglyndi leggst á um 25% kvenna og  12% karla á lífsleiðinni.
  • Talið er að einn af hverjum tíu með endurtekið þunglyndi svipti sig lífi.
  • Samkvæmt klínískum leiðbeiningum Landspítalans (og flestra heilbrigðisstofnanna) er sálfræðimeðferð árangursríkasta meðferðin við þunglyndi og kvíða, þá sérstaklega hugræn atferlismeðferð (HAM).
  • Í sömu klínísku leiðbeiningum er mælt með 16-20 sálfræðiviðtölum á 3-4 mánuðum og nokkrum eftirfylgdarviðtölum á næstu 3-6 mánuðum.

…

  • Sálfræðiþjónusta er ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins.
  • Hvert viðtal kostar um 10-15 þúsund krónur.
  • Tuttugu sálfræðiviðtöl gætu því kostað allt að 300.000 krónur.

…

Niðurstaða: Heilbrigðiskerfið á Íslandi er sjúkt.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.