Ólafur Stephensen skrifar ágætis leiðara í dag um sérálit Péturs Blöndal um skuldaleiðréttingaáform ríkisstjórnarinnar. Ólafur segir Pétur afhjúpa bullið. Þó sérálit Péturs sé ágætt má ekki gleyma því að fjölmargir afhjúpuðu bullið ítrekað fyrir kosningar. Meirihluti landsmanna hlustaði ekki og kaus yfir sig gömlu valdaflokkana með krónumerki í augunum.
Það hefur lengi verið ljóst að skuldalækkunartillaga Framsóknarflokksins (með stuðningi flestra úr Sjálfstæðisflokknum) er ósanngjörn og í raun glórulaus.
Hér eru nokkrar greinar sem ég skrifaði um málið (fyrir kosningar):
- Stórhættulegar kosningahótanir
- Kosningaveisla ríka fólksins í boði almennings
- 2007 heilkennið hrjáir þjóðina enn
Nokkrar greinar um „heimilin“: