„Þetta er bara byrjunin sem koma skal hjá nýrri ríkisstjórn. Þetta er stefnan og af þessari stefnu verður ekki vikið“ sagði Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar og þingmaður Framsóknarflokks í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. Þar voru ræddar áætlanir ríkisstjórnarinnar um að skerða útgjöld til vaxta- og barnabóta um 600 milljónir króna og draga úr útgjöldum til þróunaraðstoðar. Þetta væri hluti af því að „vinda ofan af þeirri vitleysu sem var í gangi á síðasta kjörtímabili.“ (DV.is 9. desember 2013)
„Ég geri ekki ráð fyrir að það verði nein skerðing á barnabótum þegar niðurstaða fjárlagavinnunnar liggur fyrir,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra á Alþingi í dag. (Mbl.is 10. desember 2013)
Er þetta ekki alveg skýrt?