Auglýsingar Vodafone Góð samskipti hafa vakið athygli mína. Í auglýsingunni eru talin upp þau atriði sem teljast til góðra samskipta, þau eru:
- Að setja sig í spor annarra
- Að gleyma því aldrei að annað fólk hefur þarfir og skoðanir sem eru öðruvísi en okkar eigin
- Þolinmæði, líkamstjáning og sögur
- Hugrekki, athygli, virðing og þolinmæði
- Að leiða frekar en að skipa
- Muna hluti sem snúast um aðra
Sjá auglýsingu
Á bloggsíðu Vodafone kemur fram að hugmyndin að auglýsingin hafi komið úr stefnumótunnarfundi starfsfólks Vodafone þar sem leggja átti áherslur á bætt samskipti við notendur fyrirtækisins. Ákveðið var svo að fara skrefinu lengra og rætt var við fólk utan fyrirtækisins úr hinum ýmsu stéttum s.s. hjúkrunarfræðing, prest, grunnskólanema, lögreglustjóra, þroskaþjálfa o.fl. um það hvað væru góð samskipti. Sjá hér
Þó um sé að ræða auglýsingu þá er inntak hennar mikilvægt fyrir samfélagið. Við viljum vera fyrirmyndir barna okkar og eigum að vera það. Sem fullorðnir einstaklingar höfum við vissa ábyrgð gagnvart okkar eigin börnum sem og annarra. Umræðan í þjóðfélaginu er oft á tíðum neikvæð og svarthvít. Sem dæmi má nefna ljótt og óviðeigandi orðbragð sem viðgengist hefur í athugasemdakerfum fjölmiðlanna eða í almennu umtali um nágrannann.
Það er mikilvægt að staldra við og minna sjálfan sig á hvernig hægt er að bæta samskipti sín við aðra. Því með góðum samskiptum líður okkur sjálfum ekki bara vel heldur einnig þeim sem við erum í samskiptum við.