Hoppa í efni

Lélegir þrýstihópar

Sigurður Hólm Gunnarsson | 06.03.2013

Börn, gamalt fólk, veikir einstaklingar, fátækir og annað fólk sem er valdalítið í samfélaginu er eðli málsins samkvæmt einnig lélegur þrýstihópur. Þetta fólk getur ekki styrkt stjórnmálamenn og flokka. Þessir einstaklingar hafa  takmarkaða getu eða lítinn tíma til að tjá sig opinberlega um málefni sem skipta þá máli.

Þess vegna þurfa sumir aldraðir enn að eyða síðustu æviárum sínum í ótta og við óboðlegar aðstæður heima eða í fjölbýli með ókunnugum á stofnunum. Þess vegna er engin hávær krafa um aukið fjármagn til barnaverndar í víðum skilningi. Þess vegna er fólk sem er veikt á geði og þarf læknisaðstoð vistað í fangageymslum og fíklar eru stimplaðir glæpamenn.

Hagfræðingar, lögfræðingar, læknar, atvinnustjórnmálamenn og annað fólk í fínum stöðum stjórnar umræðunni. Enda vel klætt og virðulegt.

Stjórnmál snúast því oft um að fjalla um málefni þeirra sem þurfa síst á aðstoð samfélagsins að halda.

Þessu verður að breyta.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.