Hoppa í efni

Stjórnmálasamband við miðaldarríki?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 19.11.2012

Er eðlilegt að vera í stjórnmálasambandi við Ísraelsríki þegar markmið þess er að sprengja Gaza-ströndina „aftur á miðaldir“? Er forsvaranlegt að vera í viðskiptum við ríki sem réttlætir dráp á saklausum borgurum, þar á meðal börnum, með þeim  orðum að það verði að tryggja öryggi Ísraelsríkis til næstu fjörutíu ára?

Ofbeldið verður að stöðva. Ég hvet íslensk stjórnvöld til að slíta öll stjórnmálatengsl við Ísrael og ég hvet íslenska borga til að hætta að versla vörur frá Ísrael. Stjórnmálamenn í Ísrael verða að fá skýr skilaboð frá umheiminum um að ofbeldi gagnvart saklausum borgurum verði ekki liðið.

Ísland hefur ekkert að gera með að vera í tengslum við miðaldarríki.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (850) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.