Kjánatrukkur nokkur kemur ítrekað fram í fjölmiðlum og stærir sig af lögbrotum og ofbeldisverkum. Maðurinn viðurkennir fúslega að hann starfi sem handrukkari og að hann eigi nóg af peningum. Hvað gerir lögreglan við svona opinberar játningar?
Yfirlýstur glæpamaðurinn skrifar reglulega athugasemdir við fréttir um sig í netmiðlum og sendir á Facebook. Oftar en ekki fá athugasemdir kjánans flest „like“. Hvað segir þetta um lesendur? Er allt í lagi að „líka við“ bullið glæpahyski? Aumingja- og hálfvitadýrkunin á Íslandi virðist óþrjótandi.
Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
Mér finnst einmitt mjög athyglisvert að þessar opinberu játningar skuli ekki þykja tilefni til rannsóknar. Sennilega hefur löggan of mikið að gera við að hnusa eftir kannabislykt á götum úti.
Man líka eftir frétt í fjölmiðlum á árinu um að ákveðinn söngvari (man ekki nafnið) hefði notað fíkniefni á tónleikasviði fyrir framan áhorfendur. En ég man ekki til þess að lögreglan hefði rannsakað það mál heldur. Ef það hefði verið hinn venjulega meðaljón hefði hann strax verið settur í gæsluvarðhald og neitað um brottför af landi á meðan rannsóknin væri í gangi.
Held að löggan forðist að blanda sér í málefni fræga fólksins.



