Hoppa í efni

The Dirt – Sagan af Mötley Crue

Sigurður Hólm Gunnarsson | 31.01.2010

„Motley Crue: The Dirt - Confessions of the World's Most Notorious Rock Band“ er einstaklega áhugaverð bók og listilega vel skrifuð. Eins og titillinn gefur til kynna fjallar hún um sögu glysrokkbandsins Mötley Crue. Ég var nú aldrei mikill aðdáandi Mötley en hafði þó mjög gaman að plötu þeirra Dr. Feelgood, sem var söluhæsta plata þeirra.

Lífsreynslusögurnar í þessari bók eru óborganlegar og er ég viss um að flestir hefðu gaman að því að lesa þær, algerlega óháð því hvort lesendur hafi verið aðdáendur eða hlusti á rokk yfirleitt.  Hver hefur ekki gaman af sögum um fyllerí, dóp, „dömur“ og aðra vitleysu? (Dæmi: Ozzy Osbourne stelur kjól af gamalli konu og sigrar ógeðslegu-keppni með því að lepja upp eigið hland).

Það sem kemur þó mest óvart í umræddri bók er hvernig fjallað er um mannlega þáttinn. Þessir, einu sinni, heimsfrægu rokkarar sem áttu og gátu allt voru þegar upp er staðið lítið annað ein einmanna nördar sem þráðu heitast að eignast heilbrigða fjölskyldu, konu og börn.

Stórgóð bók sem fær mann til að hlægja, skammast sín fyrir hönd annarra og á tímum fella tár.

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Heiðar Halldórsson 1. febrúar 2010

    Tommy varð að ósk sinni, allavegana með börnin.  Pamela Anderson "Lee" reyndist hinsvegar ekki sú húsmóðir sem hann hafi óskað sér. Life´s tough! 😉

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (849) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.