Hoppa í efni

Jólin og fæðing hinnar ósigruðu sólar

Sigurður Hólm Gunnarsson | 22.12.2009

Dagurinn í dag er níu sekúndum lengri en gærdagurinn, sem var stysti dagur ársins. Er það mikið fagnaðarefni og í raun helsta ástæðan fyrir því að haldið er upp á jól. Það er í það minnsta uppruni jólahátíðarinnar. Flestir halda að jólahátíðin eigi rætur í kristinni trú en það ekki alls kostar rétt. Jólin er heiðin sólarhátíð sem kristnir menn breyttu síðar í kristilega hátíð. Til forna fögnuði menn og konur „fæðingu hinnar ósigruðu sólar“. Þessi hátíðarhöld breyttust svo smá saman í hátíð í tilefni „fæðingu hins ósigraða sonar“.  (Sjá nánar: Fæðingu sólarinnar fagnað, þar sem fjallað er um fornar heiðnar hátíðir sem flestar voru haldnar í tengslum við sólina og sólguði).

Jólin nýlega kristileg hátíð
Í raun urðu jólin kristileg hátíð frekar seint. Frumkristnir menn fögnuðu alls ekki jólunum, eða fæðingu frelsarans. Þvert á móti töluðu helstu kirkjufeðurnir mjög gegn slíkum hátíðum. Tertullian (kirkjufaðir, lést 220) fjallar ekki um jól (eða 25. desember) sem kristna hátíð og árið 245 segir guðfræðingurinn Origen frá Alexandríu að aðeins syndugir menn fagni afmælum eða fæðingardögum. Fjölmargir áhrifamenn innan kristinnar trúar á þessum tíma gera enn fremur lítið úr trúarbrögðum þar sem fæðingu hina ýmissa guða er fagnað með sérstakri hátíð.  Einstaka heimildir eru til um kristnar jólahátíðir í gegnum tíðina en það var ekki fyrr en undir lok miðalda sem jólin urðu að útbreiddri hátíð, og þá í allt annarri mynd en við þekkjum nú.

Jólin bönnuð
Hreintrúaðir voru lengi vel almennt á móti jólahátíðinni þar sem um var að ræða heiðna hátíð sem hafði ekkert með Jesú Krist að gera (sjá nánar: Fæðingu sólarinnar fagnað). Þannig var bannað að halda jólin víðs vegar, t.d. í Boston í Bandaríkjunum frá 1659 til 1681. Enn í dag eru fjölmargir trúarhópar á móti jólunum (t.d. Vottar Jehóva) af sömu ástæðum.

Hækkandi sól boðar bjartari daga og nýtt líf
Hátíðarhöld í kringum hækkandi sól eru skiljanleg og í raun eðlileg. Líf og afkoma manna snérist, og snýst enn, um árstíðirnar. Lækkandi sól boðar nótt, kulda, dvala og dauða á meðan hækkandi sól boðar bjartari daga, hlýju, grósku náttúrunnar og nýtt líf.

Með þetta í huga óska ég öllum lesendum gleðilegra jóla!

Sjá nánar:
Fæðingu sólarinnar fagnað

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Stefán E. Hafsteinsson 22. desember 2009

    Gleðileg jól
    amen

  2. Hafdís Bjarnadóttir 22. desember 2009

    Gleðileg jól/sól :)!

  3. Svanur Sigurbjörnsson 22. desember 2009

    Sæll Siggi
    Fróðleg grein og þörf því að barnaleg einföldun kristinna trúarleiðtoga á því hvað er á bak við jólin og hverjum jólin sé "að þakka" er tímabært að leiðrétta.   Bestu jólakveðjur - Svanur
    PS:  Þrælflott útlit á síðunni þinni núna - til hamingju með það!

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.