Hoppa í efni

Meira um rafmagnsbílavæðingu

Sigurður Hólm Gunnarsson | 08.09.2009

Í grein sem ég skrifaði í ágúst velti ég því fyrir mér hvers vegna Ísland væri ekki í fararbroddi í rafmagnsvæðingu bílaflotans. Augljóst er að Ísland er kjörið land fyrir innleiðingu rafmagnsbíla, ekki síst þar sem hér er framleitt svo mikið af vistvænni orku. Ég held að þeir vinstrimenn sem nú stýra landinu ættu að átta sig á því að nú geta þeir hætt að mótmæla vondu mengandi kapítalistunum og í staðinn látið verkin tala. Betra er að tendra lítið ljós (í þessu tilfelli umhverfisvænan bálköst) en að bölva myrkrinu, eins og vitur maður sagði forðum.

Þann 14. og 15. september næstkomandi verður haldin ráðstefna um vistvæn farartæki (þar á meðal rafmagnsbíla) á Hilton hótelinu í Reykjavík. Það verður spennandi að fylgjast með hvort ráðamenn þjóðarinnar taki við sér í kjölfar ráðstefnunnar.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Náttúra og umhverfi

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.