Hoppa í efni

Af hverju er hlegið að sköpunarsinnum?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 27.04.2008

Mörg áhugaverð og fræðandi myndbönd er hægt að finna á vefsetrinu YouTube. Eins og flestir vita er mikið rætt um sköpunarsögu biblíunnar í Bandaríkjunum (og reyndar víðar, jafnvel hér á Íslandi). Gríðarlega öflugur þrýstihópur bókstafstrúaðra Bandaríkjamanna gerir sitt besta til að tryggja að sköpunarsagan verði kennd í opinberum skólum sem vísindi. Fjölmargir háttsettir menn innan bandaríska stjórnkerfisins afneita þróunarkenningu Darwins og vilja að útgáfa af sköpunarsögunni, sem þeir kalla kenninguna um „vitræna hönnun“, verði kennd í skólum samhliða þróunarkenningunni. Í þessari myndaröð (sem nú þegar inniheldur 23 myndbönd og þeim fer fjölgandi) er sagt skemmtilega frá því hvers vegna vísindamenn almennt hlægja að sköpunarsinnum. Vanþekking þekktustu sköpunarsinna veraldar á vísindalegum vinnubrögðum er vægast sagt stórkostleg.

Why do people laugh at creationists? (part 1)

Hin myndböndin er hægt að skoða hér…

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. sbs 27. apríl 2008

    eitt skemmtilegasta myndband sem ég hef séð á youtube, er af manni sem virðist vera í einhverskonar sjónvarpsviðtali, og hann bendir, réttilega á, að bananinn sé martröð darwinista.
    hann sýnir hvað hann passar vel í hendi, að hann sé opnanlegur að ofan (eins og kókdós) og fleira skemmtilegt. fyrst bananinn er til, þá hlýtur guð að vera til.
    hann útskýrði ekki ananas.
     

  2. Brynjólfur Þór 14. maí 2008

    Dó Skoðun drottni sínum eftir menningarferð ritstjórans í höfuðstað suðvesturhornsins? Ég sem var orðinn svo spenntur.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Vísindi, gagnrýnin hugsun og tækni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.