Hoppa í efni

Frábærir tónleikar Evergrey – myndir á netið

Sigurður Hólm Gunnarsson | 14.09.2003

Hljómsveitin Evergrey.Lítið hefur farið fyrir uppfærslum á þessari síðu síðustu daga og eru margar skýringar á því. Ein er sú að ég hef verið upptekinn við að aðstoða sænsku metalsveitina Evergrey við tónleika og ferðalög hér á landi.


Þorsteinn frændi stóð að því að flytja Evergrey til Íslands og hélt hljómsveitin tónleika á Gauknum 9. og 10. september. Ég aðstoðaði Steina eftir bestu getu meðal annars með því að keyra bandið um Ísland. Þetta var tímafrek en mjög skemmtileg upplifun þar sem að ég hef verið aðdáandi Evergrey. Þetta reyndust vera hinir fínustu drengir og virkilega gaman að kynnast þeim. Ég og Steini fórum meðal annars með þá til Þingvalla auk þess sem við sýndum þeim Gullfoss og Geysir.

Ég er ekki frá því að ég hafi saknað síða hársins nokkuð síðustu daga. 🙂

Annars er ljóst að ég er orðinn hundgamall, er með hálsríg og bakverki eftir aðeins tveggja daga rokk…

En hvað um það? Ég hef sett myndir af ferðalagi Evergrey um landið á vefinn.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.