Hver er ógnin?
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Utanríkismál
Viðbrögð: Ummæli (
Hvorki mannlegur né guðlegur* máttur fær mann til að skilja hvers vegna í ósköpunum Íslendingar ættu að hafa, og hvað þá reka, her. Að Íslendingum stafar engin bein ógn, ef við utanskiljum þá ógn sem okkur stafar af heimskulegum hugmyndum. Í raun er aðeins hægt að hugsa sér eina gilda ástæðu fyrir því að óvinveittum aðilum dytti í hug að ráðast á þetta litla sker sem við köllum Ísland. Ástæðan er einmitt sú staðreynd að her, afar óvinsællar þjóðar víðs vegar um heiminn, er staðsettur hér á landi.
Sjaldan hafa heyrst eins gjaldþrota rök svífa um andrúmsloft Jarðar og þegar stuðningsmenn hers á Íslandi þenja raddböndin. Sumir þeirra halda því fram að við getum ekki talist sjálfstæð þjóð nema að við séum með her, aðrir virðast dauðhræddir um að einhver vitstola einræðisherra ráðist á okkur um leið og dátinn fer (líklegast til að leggja undir sig íslenskar lúpínur og önnur íslensk auðævi) og enn aðrir trúa vitleysunni í Bush, Rumsfeld og Birni Bjarnasyni. Það er að al-Qaida og önnur hryðjuverkasamtök bíði spennt eftir því að fjárfesta í dúnúlpum og skíðagleraugum og leggi leið sína á Frón um leið og herinn flýgur burt. Jafnvel til að undirbúa mesta hryðjuverk sögunnar.
Áhyggjum hersinna svarað
Í fyrsta lagi geta Íslendingar allt eins lokað sjoppunni ef þeir eru sannfærðir um að þeir geti ekki verið sjálfstæðir án þess að hér á landi búi nokkur byssuglöð ungmenni, íslensk eða aðflutt, sem eru sérþjálfuð í því að drepa.
Í öðru lagi eiga Íslendingar enga óvini. Það er engin þjóð nálægt okkur sem ógnar öryggi Íslands. Kannski var ástandið annað á tímum kalda stríðsins, en í dag eigum við enga óvini. Auk þess er það ljóst að ef ástandið í heiminum myndi skyndilega breytast okkur í óhag, til dæmis ef Færeyingar kæmu sér upp kjarnorkuvopnum, þá tæki það bandalagsþjóðir okkar í NATO ekki nema nokkra klukkutíma að senda eins og fjórar herflugvélar til landsins (sem á víst að vera nóg til að tryggja varnir Íslands) og það tæki ekki nema örfáa daga til viðbótar að senda okkur nokkur flugmóðurskip (og Jay Leno til að hressa uppá mannskapinn).
Í þriðja lagi er ótti Frónverja við hryðjuverk hlægilegur. Það hefur enginn hryðjuverkamaður áhuga á að koma til Íslands (nema hann sé einnig þýskur túristi). Bæði er þjónusta Flugleiða vart mönnum bjóðandi auk þess sem hér er ekkert að sprengja upp. Nema jú herstöð Bandaríkjamanna. Ef einhver hryðjuverkamaður veit á annað borð að Ísland er til, og að sá staður er á Jörðinni, þá er það vegna þess að hér er bandarísk herstöð.
Besta leiðin til þess að koma í veg fyrir hryðjuverk á Íslandi er því að breyta varnarstöðinni í herminjasafn og kjósa stjórnmálaflokka til valda sem ekki eru Kanasleikjur í utanríkiseiginhagsmunamálum.
*Enda er undirritaður trúleysingi.
Hver er þín skoðun?
2 athugasemdir
Hver er þín skoðun?
Nýlegar færslur
- Grimmd – Sögur af einelti
- Að kunna að bera ábyrgð
- Titanic og Titan: Skáldskapur verður að raunveruleika
- Þegar Ísland breyttist í alræðisríki: Li Peng, Jiang Zemin og Falun Gong
- Hugvekja um hugsanaskekkjur
- Um mótmæli og ógeðslega orðræðu
- Heimildarþáttur um einelti settur á netið
- Mannskemmandi einelti
- Klappað fyrir dauðarefsingum
- Gummi best?
- Trú í lagi svo lengi sem trúariðkun er sleppt?
- Mannréttindakafli nýrrar stjórnarskrár? – Fundur á vegum Siðmenntar
Mikid rett. Mikill sannleikur.
Er Bjorn Bjarnason ekki bara buin ad horfa a Die Hard seriunna alltof oft?
Ég reikna með að vefstjórinn sé að endurvekja þennan þráð með því að vísa til þessarar greinar í nýlegum forsíðupistli?
Við lesturinn hér að ofan varð mér skyndilega hugsað til 11. september 2001 og geðshræringarinnar sem skóp bandarískt samfélag í
kjölfarið.
Á þeim tíma bjó ég í BNA, nánar tiltekið í einni árásaborganna, Washington DC.
Mér þótti áhugavert (eða hlægilegt) að horfa á
múgæsingafréttaflutninginn í kjölfar árásanna þar sem öll möguleg og ómöguleg kennileyti BNA urðu að skotmörkum Bin Laden og kó.
Það komu reglulega fréttir af hertri öryggisgæslu við Hoover Stífluna, einhvern boga í St Louis (sem líkist mcdónalds-lógóinu), frelsisbjölluna í Fíladelfíu osfrv osfrv.
Allt staðir sem ég geri sterklega ráð fyrir að ,,hinn almenni arabíski hryðjuverkamaður“ hafi aldrei heyrt um. Ég meina, kana-lover
eins og ég hafði ekki einusinni heyrt um helming þessara staða sem starfaði nú gríðarleg ógn af hryðjuverkamönnum.
Er Ísland kannski bara Hoover-stífla eða boginn í St. Loius. Möo erum við inn á radar hryðjuverkamanna?
Ætli myndbirting DV af spámanninum komi okkur á kortið?
Og jafnvel þá, hefur verið mikið um hryðjuverki í Danmörku og Frakklandi osfrv í kjölfar myndbirtinga þar í landi?
EÐA hefur Bush-stjórninni kannski tekist ætlunnarverkið og unnið fullnaðarsigur í stríðinu gegn hryðjuverkum með því að ,,outsource-a“
þeim til Írak?
Eini mælikvarðinn sem hægt er að nota í ,,stríðinu gegn hryðjuverkum“ er fjöldi hryðjuverkaárasa sem gerður er ár hvert. Árið 2003 lýsti
Bush-stjórnin því yfir að þeim væri að takast merkilega vel upp í stríðinu gegn hryðjuverkum því fjöldi hryðjuverkaárasa það árið hafði
minnkað um einhver 25%. Reyndar þá ,,gleymdu” þeir nóvember og desember mánuði sem voru alveg brútal mánuðir í hryðjuverkabransanum og þegar þú tekur ALLT árið 2003 með í reikninginn þá var fjöldi
hryðjuverkaárasa talsvert meiri en árið þar á undan.
Árið 2004 var fjöldi hryðjuverkaárasa í heiminum síðan um 400% hærri en árið 2004. Og árið 2005 hætti bandaríska utanríkisráðuneytið að
birta fjölda þeirra í árlegri skýslu sinni!
Enda handónýtur mælikvarði ef pólitískur ásteningur þinn er að lýsa yfir sigri eða framförum í þessu ,,stríði gegn hryðjuverkum”.
Aftur er ég kominn soldið út um allt en það er vegna þess að nú er voða móðins að segja að það er engin hefðbundin ógn sem stafar að
okkur Íslendingum heldur bara óhefðbundin ógn eins a la Washington- visku-haukar, ergo hryðjuverkaáraásir.
Ég leyfi mér að efast að Ísland sé inn á radar hryðjuverkamanna. Það er gósentíð hjá þeim í Írak og Ísrael (miklu styrra að ferðast og mun
hlýrra!) Síðan þegar þeir eru orðinir leiðir á heita veðrinu þá geta þeir byrjað farið að herja aftur á vini þeirra í Bandaríkjunum, svo
Þýskalandi, svo Frakklandi, svo Bretlandi, svo Danmörku, svo Póllandi, svo Ítalíu…svo …jæja, þið sjáið hvað ég á við!
Við þurfum bara að komast af þessum fáranlega lista hinna viljugu!
Standa í lappirnar og vera soldið sjálfsörugg.